28 ára hagvaxtarskeiði lokið

Í Ástralíu er skollin á kreppa, sú fyrsta í 28 …
Í Ástralíu er skollin á kreppa, sú fyrsta í 28 ár. AFP

Kreppa er skollin á í Ástralíu, sú fyrsta í tæpa þrjá áratugi en samdrátturinn á öðrum ársfjórðungi mældist 7% og hefur aldrei verið meiri þar í landi.

Nánast allt var lokað í Ástralíu vikum saman vegna kórónuveirunnar og þrátt fyrir að yfirvöld hafi sett milljarða dala inn í efnahagslífið virðist það aðeins vera dropi í hafið hjá mörgum þeirra sem eru í atvinnurekstri.

Tölurnar tala sínu máli, segir fjármálaráðherra Ástralíu, Josh Frydenberg. Þær staðfesta hörmulegar afleiðingar COVID-19 á efnahag landsins. Þar hafi verið hagvöxtur í 28 ár en þetta lengsta hagvaxtartímabil sögunnar hefur nú runnið sitt skeið á enda. Ástæðan er farsótt af þeirri gerð sem sést aðeins einu sinni á öld.

Á fyrsta ársfjórðungi mældist samdrátturinn 0,3% og á öðrum ársfjórðungi var hann 7%.

Sam­kvæmt niður­stöðum þjóðhags­reikn­inga er áætlað að lands­fram­leiðslan hafi dreg­ist sam­an um 9,3% að raun­gildi á 2. árs­fjórðungi 2020 á Íslandi borið sam­an við sama tíma­bil fyrra árs. Það er mesti sam­drátt­ur sem mælst hef­ur síðan árs­fjórðungs­leg­ar mæl­ing­ar hóf­ust hér á landi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK