Íslandsbanki heldur á 1.804.432.309 hlutum í Icelandair group eftir hlutafjárútboð Icelandair um daginn. Er þetta 6,35% af heildarfjölda hlutabréfa í flugfélaginu. Þetta kemur fram í flöggun til Kauphallarinnar þar sem félagið fór yfir 5% mörk.
Tekið er fram í tilkynningunni að hluti Íslandsbanka skiptast á eignahluti bankans, veltubók og eignarhluta vegna framvirka samninga við viðskiptavini bankans. Þar geta því verið hlutir sem viðskiptavinir eiga, m.a. í gegnum einkabankaþjónustu o.fl.