Nýskráningum bíla fækkar um 20%

Nýskráningum bifreiða fækkar umtalsvert milli ára.
Nýskráningum bifreiða fækkar umtalsvert milli ára. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýskráningar nýrra fólksbíla voru 9.369 talsins á árinu 2020. Er það undir meðaltali síðustu ára og um 20,1% færri bílar en voru nýskráðir á árinu 2019 þegar þeir voru 11.728 talsins.

Nýskráningar eftir mánuðum 2020 voru nokkuð sveiflukenndar borið saman við sömu mánuði árið áður, samkvæmt tilkynningu frá Bílgreinasambandinu. Þannig voru færri nýskráningar í 7 mánuðum ársins (mest -74,4% í maí) en söluaukning í hinum 5 mánuðunum (mest +44,4% í júlí). Sé horft á þetta eftir árshelmingum þá varð samdrátturinn á fyrri hluta ársins 42,5% miðað við sama tímabil 2019 en hins vegar 16,7% söluaukning á seinni hluta ársins.

Einstaklingar keyptu 7,1% fleiri fólksbíla en árið 2019 og almenn fyrirtæki keyptu sömuleiðis 7,1% fleiri fólksbíla. Bílaleigur drógu hins vegar úr kaupum um 57,4% á milli ára og því ljóst að heildarsamdráttinn má fyrst og fremst rekja til minni umsvifa í ferðaþjónustunni, sem á sér augljósar skýringar.

Árið 2020 var einstakt þegar kemur að skráningum nýorkubíla (rafmagn, tengiltvinn, hybrid og metan) og varð stórt stökk á milli ára í nýskráningum þeirra sem hlutfall af heildarskráningum. Samtals stóð þessi hópur bíla fyrir 57,9% nýskráninga en til samanburðar var hlutfallið 27,6% árið 2019. Hreinir rafmagnsbílar fóru þarna fremstir í flokki með 25,2% af öllum nýskráningum. Þar næst komu tengiltvinnbílar með 19,9%, hybrid bílar með 12,5% og metanbílar með 0,4%.

Mest selda fólksbílategundin á árinu var Toyota með 1.383 bíla og 14,8% hlutdeild, þar á eftir kom Kia með 929 bíla og 9,9% hlutdeild og svo Tesla með 903 bíla og 9,6% hlutdeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK