Seðlabankinn hækkar stýrivexti

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Golli

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,5%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

„Samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga var hagvöxtur á fyrri hluta þessa árs heldur minni en gert var ráð fyrir í ágústspá Peningamála. Vöxtur innlendrar eftirspurnar var hins vegar í ágætu samræmi við spá bankans. Vísbendingar eru um áframhaldandi kröftugan innlendan efnahagsbata á þriðja fjórðungi ársins og hagvaxtarhorfur fyrir árið í heild hafa lítið breyst,“ segir í tilkynningu.

Fram kemur að verðbólga hafi aukist í september og mælst 4,4%. Framlag húsnæðisliðar hafi haldið áfram að aukast og skýri það stóran hluta af ársverðbólgu í september.

„Undirliggjandi verðbólga hélt hins vegar áfram að hjaðna þótt hún sé enn nokkur. Áhrif tímabundinna framboðstruflana gætu aftur á móti varað lengur en áður var talið en þær hafa hækkað kostnað við að framleiða og dreifa vörum um allan heim,“ segir í tilkynningu.

Áhyggjuefni að verðbólguvæntingar hækki

„Þótt undirliggjandi verðbólga fari minnkandi er það áhyggjuefni að verðbólguvæntingar virðast hafa tekið að hækka á ný. Of snemmt er þó að segja til um hvort kjölfesta þeirra við verðbólgumarkmið sé að veikjast.

Peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma.“

Vextir verða því sem hér segir:

  1. Daglán 3,25%
  2. Lán gegn veði til 7 daga 2,25%
  3. Innlán bundin í 7 daga 1,50%
  4. Viðskiptareikningar 1,25%
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK