Launagreiðendum fjölgaði um 6,5% milli ára

Laun­greiðend­um á Íslandi fjölgaði um 6,5% á tólf mánaða tíma­bili, …
Laun­greiðend­um á Íslandi fjölgaði um 6,5% á tólf mánaða tíma­bili, frá nóvember 2020 til nóvember 2021. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Laun­agreiðend­um á Íslandi fjölgaði um 6,5% á tólf mánaða tíma­bili, frá nóvember 2020 til nóvember 2021.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

15.568 launagreiðendur voru í viðskiptahagkerfinu í nóvember 2021 sem er fjölgun um 949 (+6,5%) frá nóvember 2020 og fjölgun um 677 (+4,5%) frá nóvember 2019.

Frá nóvember 2019 hefur launagreiðendum fækkað um 66 (-10,3%) í rekstri gististaða og fjölgað um 50 (+7,9%) í veitingarekstri.

Frá árinu 2018 til 2019 fækkaði nýskráningum hluta- og einkahlutafélaga úr 2.307 niður í 2.201 en fjölgaði svo aftur upp í 2.487 árið 2020. Fjöldi nýskráninga hluta- og einkahlutafélaga árið 2021 liggur ekki fyrir.

Staðgreiðsluskyld launasumma lækkaði um 0,3% í október 2021 frá fyrri mánuði en hækkaði um 14,7% frá október 2020. Breytingin á milli ára var mismikil eftir atvinnugreinum. Vakin er athygli á því að greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.

Þá voru alls 765 fyrirtæki skráð gjaldþrota árið 2020 sem er fækkun um 41 frá árinu á undan. Fjöldi þeirra fyrirtækja sem skráð voru gjaldþrota árið 2021 liggur ekki fyrir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK