„Mikil reynsla“ einkenni nýja stjórnendateymið

Hópurinn á bak við Icelandia.
Hópurinn á bak við Icelandia.

„Mikil reynsla“ einkennir nýtt stjórnendateymi ICELANDIA, samstæðu Reykjavík Excursions/Kynnisferða, Icelandic Mountain Guides, Iceland Rovers, Dive.is, Flybus, dráttarbílafyrirtækisins Garðakletts og umboðsaðila bílaleigunnar Enterprise Rent-a-Car.

Í teyminu sitja, samkvæmt tilkynningu frá ICELANDIA: 

Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri, sem verið hefur framkvæmdastjóri Kynnisferða frá árinu 2017

Gísli Þór Jónsson, sviðsstjóri fjármálasviðs, sem starfað hefur hjá Kynnisferðum frá 2016 og sem fjármálastjóri frá árinu 2019

Teitur H. Syen, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs, sem hóf störf í mars

Axel V. Gunnlaugsson, sviðsstjóri upplýsingatækni, en hann hóf störf á síðasta ári.

Sigurður Steindórsson, sviðsstjóri flotastýringar, sem unnið hefur hjá Kynnisferðum frá 2018

Inga Dís Richter, sviðsstjóri sölu- og markaðsmála B2B, sem sinnt hefur stöðu sölustjóra hjá Kynnisferðum frá árinu 2016.

Arnar Már Ólafsson, sviðsstjóri sölu- og markaðsmála B2C, en hann var markaðsstjóri hjá Arcanum Fjallaleiðsögumönnum frá árinu 2010.

Elín Sigurveig Sigurðardóttir, sviðsstjóri afþreyingar, en hún var framkvæmdastjóri Arcanum Fjallaleiðsögumanna um árabil.

Sergio Mira, sviðsstjóri bílaleigu, sem starfað hefur hjá Kynnisferðum frá 2014 og sem rekstrarstjóri bílaleigunnar frá 2019.

Höskuldur Elefsen, framkvæmdastjóri Dive.is, sem starfað hefur hjá Dive frá 2010 og sem framkvæmdastjóri frá árinu 2018

Stjórnarformaður ICELANDIA er Jón Benediktsson, sem hefur verið stjórnarformaður Kynnisferða frá árinu 2017 og stjórnarmaður frá árinu 2015.

„Fyrirtækin í samstæðu ICELANDIA, sem er miðstöð ferðalausna og upplifana á Íslandi, rekja uppruna sinn allt aftur til ársins 1968, en þau sinna ferðamönnum með heilstæðri en ólíkri þjónustu sem nær allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK