Kolbeinn Finnsson gengur til liðs við Gott og gilt

Kolbeinn Finnsson.
Kolbeinn Finnsson. Ljósmynd/Aðsend

Kolbeinn Finnsson hefur gengið til liðs við ráðgjafateymið hjá Gott og gilt. Kolbeinn kemur frá Festi hf. þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.

Kolbeinn hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi og hefur setið í framkvæmdastjórn Festi og forvera þess í rúm 20 ár, að því er segir í tilkynningu. 

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Kolbein til liðs við okkur. Hann býr yfir umfangsmikilli þekkingu og reynslu sem mun styrkja enn frekar þá ráðgjöf og þjónustu sem við bjóðum,“ segir Sigurður Ólafsson, eigandi Gott og gilt, í tilkynningunni.

„Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þau verkefni sem bíða mín hjá Gott og gilt. Ég mun aðallega leggja áherslu á mannauðsmál, breytingastjórnun, vinnuumhverfi og öryggismál starfsmanna. Einnig mun ég leggja áherslu á aðstoð við fyrirtæki við innleiðingu á nýjum ESB sjálfbærnireglugerðum sem taka senn gildi,“ segir Kolbeinn Finnsson í tilkynningunni. 

Þá segir, að Gott og gilt hafi á að skipa öflugu teymi sérfræðinga sem veiti m.a. ráðgjöf og þjónustu á sviði mannauðsstjórnunar, túlkunar á kjarasamningum og vinnulöggjöf, launagreiningum og undirbúningi fyrirtækja fyrir jafnlaunavottun. Nú bætist við sérþekking sem Kolbeinn komi með inn í teymið. Þá segir, að ráðgjafar Gott og gilt búi allir að langri reynslu og þekkingu á íslenskum vinnumarkaði og leggi áherslu á skilvirkar leiðir til að ná árangri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK