„Þetta er allt að koma núna“

Venus NS er á kolmunnaveiðum.
Venus NS er á kolmunnaveiðum.

„Það má segja að þetta sé annar kolmunnaveiðitúr ársins hjá okkur og sá fyrsti í færeyskan sjó. Þetta er allt að koma núna og mikið af ágætum kolmunna er að ganga norður í færeysku lögsöguna.“

Þetta er haft eftir Róberti Axelssyni, skipstjóra Venusar NS, á vef HB Granda.

Venus kom til heimahafnar á Vopnafirði í gær með um 2.500 tonn af kolmunna, en aflinn fékkst í nokkrum holum í færeyskri lögsögu. Kolmunninn er sagður hafa gengið af krafti norður með Skotlandi og inn í færeysku lögsöguna á undanförnum dögum.

Róbert segir áhöfnina á Venusi hafa farið allt suður að Rockall í fyrstu veiðiferðinni. Þá hafi aflinn verið að detta niður og því hafi áhöfnin reynt fyrir sér á alþjóðlegu hafsvæði norðan við Rockall.

Leituðu vars á Suðurey

Aflabrögðin hafi hins vegar verið treg og bestu aflabrögðin hafi verið inni í ESB-lögsögunni, reyndar það góð að ESB-skipin séu búin með kvóta sína og Norðmenn séu í svipaðri stöðu eftir að hafa veitt meira en 200 þúsund tonn.

Venus, ásamt Víkingi AK, leitaði vars í höfn á Suðurey í síðustu viku vegna veðurs. Fór skipið út að nýju á skírdag og veiðin verið góð síðan.

Róbert býst við að komast aftur til veiða í kvöld að lokinni löndun. Þá mun afli Víkings bíða löndunarmanna en Víkingur kom til hafnar á Vopnafirði seint í gærkvöldi, að því er fram kemur á vef HB Granda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »