Smáforrit fyrir tilkynningaskyldu

Smábátar í Reykjavíkurhöfn.
Smábátar í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Ómar

Neyðarlínan og Landhelgisgæslan hafa tekið í notkun nýtt smáforrit sem skip og bátar geta notað til að tilkynna til Vaktstöðvar siglinga þegar þau leggja úr höfn. 

Fram kemur á heimasíðu Landhelgisgæslunnar, að smáforritið sé fyrst og fremst ætlað minni skipum en ekkert sé því til fyrirstöðu að stærri skip noti það einnig. Hægt sé að nálgast forritið, sem heitir „Vss App”, í Play store fyrir Android snjallsíma. Sama forrit beri nafnið „VSS Login“ og sé aðgengilegt í App Store fyrir þá sem hafa Apple snjallsíma.

Þegar forritinu hefur verið hlaðið niður, getur skipstjóri skráð sig inn með kennitölu og í framhaldi notað forritið til að skrá skip sitt úr höfn. Þá geta skipstjórar farþegaskipa skráð fjölda farþega og áhafnarmeðlima um borð. Hugbúnaðurinn virkar þannig að ef ferilvöktunarbúnaður viðkomandi skips er óvirkur þegar það er tilkynnt úr höfn með þessum hætti, fær skipstjóri ábendingu frá forritinu um að hafa samband við Vaktstöð siglinga.

Landhelgisgæslan segir, að öll íslensk skip séu í ferilvöktun hjá Vaktstöð siglinga svo hægt sé að bregðast við ef alvarlegir atburðir koma upp um borð. Ef ferilvöktun skips verði óvirk og ekki næst samband við skipið sendir stjórnstöð Landhelgisgæslunnar björgunaraðila til aðstoðar. Skip í grenndinni eru gjarnan fyrst á vettvang.  Mörgum mannslífum hafi verið bjargað fyrir tilstuðlan ferilvöktunarinnar og samstarfsins við íslenska sjómenn. 

Árið 2017 er annað árið frá upphafi mælinga sem enginn íslenskur sjómaður lætur lífið úti á sjó og segir á heimasíðu Landhelgisgæslunnar, að ferilvöktunarkerfið eigi stóran þátt í þeim góða árangri.​

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »