Þrír sjávarútvegsfræðingar til Skagans3X

Pétur Jakob Pétursson.
Pétur Jakob Pétursson.

Hátæknifyrirtækið Skaginn3X hefur ráðið til sín þrjá unga sjávarútvegsfræðinga frá Háskólanum á Akureyri í söluteymi fyrirtækisins. Allir hafa þeir það sameiginlegt að hafa unnið lengi í sjávarútvegi, bæði til sjós og lands, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Pétur Jakob Pétursson hefur verið ráðinn sem svæðissölustjóri fyrir Rússland og Samveldi sjálfstæðra ríkja. Hann er með Bsc. gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri auk frekara náms í sjávarútvegsfræði, meðal annars frá Háskólanum í Tromso í Noregi.

Pétur starfaði áður við innkaup og gæðastjórnun hjá Deutsche See, en fyrir það starfaði hann sem gæða og framleiðslustjóri hjá DFFU og við gæða- og sölumál hjá Samherja á Akureyri.

Freysteinn Nonni Mánason.
Freysteinn Nonni Mánason.

Freysteinn Nonni Mánason hefur þá verið ráðinn í stöðu svæðissölustjóra fyrir Ísland. Freysteinn er uppalinn Ísfirðingur með Bsc. gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu.

Hefur hann lengi starfað í kringum sjávarútveg bæði á sjó og landi, meðal annars á Fiskmarkaði Suðurnesja, sem verkstjóri í fiskvinnslu og sem háseti og matsmaður á frystitogara.

Böðvar Styrmisson.
Böðvar Styrmisson.

Böðvar Styrmisson hefur verið ráðinn sem söluhönnuður, en Böðvar er Grindvíkingur með Bsc. gráðu í Sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri, ásamt því að hafa stundað nám í tækniteiknun hjá Tækniskólanum.

Starfaði hann áður á Fiskmarkaði Suðurnesja, en hann hefur lengi starfað í sjávaútvegi, m.a. sem sjómaður og í fiskvinnslum í landi.

Allir hafa þeir þegar hafið störf hjá fyrirtækinu og er fullyrt að nóg sé af verkefnum fram undan, enda séu vörurnar frá Skaganum3X eftirsóttar bæði innan- sem utanlands.

„Það er umtalsverð aukning í umsvifum á okkar lykilmörkuðum þannig að þeir eru frábær viðbót við teymið okkar, ekki síst til að tryggja áframhaldandi gott samstarf við núverandi og nýja viðskiptavini,“ er haft eftir Jóni Birgi Gunnarssyni, markaðs- og sölustjóra Skagans3X.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »