„Þarna skall hurð nærri hælum,“ segir Guðmundur Helgi Önundarson, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar á Reykjanesi. Skipið Valþór GK-123 varð vélarvana skammt fyrir utan Garðskagavita í hádeginu, með fimm manns um borð, en björgunaraðgerðir gengu hratt og vel fyrir sig.
Vaktstöð siglinga óskaði eftir aðstoð vegna skipsins klukkan 12.24 og björgunarskipið Hannes Hafstein kom að vélarvana skipinu rúmum hálftíma síðar. Hannes var kominn með Valþór í tog 13.17 og var þrjá tíma að draga hann í Keflavíkurhöfn.
Guðmundur segir að skipið hafi verið mjög nálægt landi, um eina sjómílu frá Garðskagavita, þegar tilkynningin barst. Það hafði rekið um 0,2 sjómílur frá því að boðin bárust og þar til Hannes kom til aðstoðar.
Hann lýsir því þannig að skipið hafi verið rétt norðan við flösina á Garðskagavita en þar er mjög aðgrunnt. Alls hafi 27 björgunarsveitarmenn úr björgunarsveitunum Suðurnesjum, Sigurvon og Ægi tekið þátt í aðgerðum sem Landhelgisgæslan stjórnaði.
„Aðstæður voru frekar erfiðar. Það var norð-norðaustanátt og tólf metrar á sekúndu og skipið rak í átt að landi,“ segir Guðmundur og bætir við að skipverjar hafi gert hárrétt í því að koma akkeri niður og bíða.
„Snör handtök gerðu það að verkum að við gátum bjargað þessu fyrir horn,“ segir Guðmundur og hrósar öllum sem að björguninni komu.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |