„Það er enginn friður til að athafna sig“

Venus NS hefur veitt um 840 tonn af kolmunna, en …
Venus NS hefur veitt um 840 tonn af kolmunna, en hefur verið á stöðugum flótta undan veðri.

Áhafnir uppsjávarskipa sem hafa verið við kolmunnaveiðar í færeyskri lögsögu hafa fengið að kynnast erfiðum veðurskilyrðum að undanförnu, að því er fram kemur á vef Brims. Þar er haft eftir Berg Einarsson, skipstjóra Venusar NS, á tíu dögum hefur tvisvar þurft að leita vars í færeyskum höfnum.

„Við fórum að heiman að kvöldi 3. janúar og það má segja að allan tímann hafi verið ótíð. Veður eru mjög hörð hérna og það er enginn friður til að athafna sig. Við reynum að nýta þá glugga sem gefast og einum slíkum veðurglugga er spáð seinni part laugardags. Hann á að vera 18 tímar og gangi spáin eftir ætti að vera friður til veiða fram á sunnudagsmorgun. Reyndar hefur svona gluggum verið spáð áður en okkur reynsla er sú að umræddir gluggar eru líkari lausafögum,“ segir Bergur er Venus var í vari við Suðurey vegna veðurs.

Á þessum túr hefur tekist að veiða um 840 tonn af kolmunna, en aðeins hafa verið tekin þrjú hol vegna veðurs, að sögn skipstjórans.

„Þegar við höfum getað verið að þá höldum við okkur á gráa svæðinu syðst og austast í færeysku lögsögunni. Kolmunninn er enn að ganga suður til hrygningar en venjulega deyr veiðin hérna út í kringum 20. janúar. Svo gerist ekkert fyrr en eftir svona viku af febrúar. Þá byrjar kolmunninn að ganga norður eftir í ætisleit. Veiðin er fyrst vestur Írlandi og svo færist hún smám saman norðar,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »