Vilja sjómenn aftur í starfið

Örn Smáarson - Verkefnastjóri sjóbjörgunar
Örn Smáarson - Verkefnastjóri sjóbjörgunar mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það er ekki sjálfgefið að fólk gefi tíma sinn og krafta í að aðstoða meðborgara sína en það gerir fjöldi fólks á sjóbjörgunarskipum Landsbjargar. Hins vegar hefur þátttaka dvínað nokkuð og er talið að hún muni aukast á ný við endurnýjun skipakosts sjóbjörgunarsveitanna.

Við erum að fara að leggja fyrsta kjölinn með þeim í byrjun nóvember og er afhendingin í júní á næsta ári,“ svarar Örn Smárason, verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, er hann er spurður um framvindu endurnýjunar skipaflota sjóbjörgunarsveitanna. Landsbjörg gekk í sumar frá samningi við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec í Finnlandi um smíði á þremur nýjum björgunarskipum.

„Í þessum fyrsta fasa eru þrjú skip. Við erum með viljayfirlýsingu frá ríkinu upp á sjö í viðbót þegar þessum fyrsta hluta er lokið. Stóra planið okkar er að endurnýja öll þrettán skipin og verðum við að vinna að því markmiði leynt og ljóst næstu tíu til þrettán árin.“

Örn segir að safnað hafi verið í sarpinn í töluverðan tíma er hann er spurður hvernig gangi að fjármagna verkefnið. „Það hefur gengið ágætlega vegna þess að við höfum notað afgang af rekstrar- og viðhaldsfé í endurnýjunarsjóð, þannig að við erum ágætlega stödd í því. En það breytir því ekki að við erum með alla anga úti og erum nú þegar að vinna í viðbótarfjármögnun til þess að geta haldið þessu verkefni áfram. Við erum að reyna að velta fjármagninu sem við erum búin að tryggja okkur inn í næsta fasa og erum klárlega að leita til atvinnulífsins og sjávarútvegsins um frekari stuðning en hingað til hefur verið, sem hefur þó alltaf verið ríkulegur stuðningur. En oft var þörf en nú er nauðsyn.“

Landsbjörg gekk í sumar frá samningi við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec …
Landsbjörg gekk í sumar frá samningi við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec í Finnlandi um smíði á þremur nýjum björgunarskipum.

Fjöldi í takt við aldur skipanna

Um mönnun skipanna sem sjóbjörgunarsveitirnar búa yfir segir hann ekki sjálfgefið að hægt sé að fá nægilega marga sjálfboðaliða. „En það gengur ekki illa og alltaf má gera betur. Í því samhengi er reynsla okkar á Ísafirði ágæt. Við æfum reglulega með þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar í svokölluðu næturflugi – á haustin byrja þeir að koma með beiðnir til að viðhalda flugtímanum sínum. Á [björgunarskipinu] Gunnari Friðrikssyni sem var þá voru þetta svona fimm sex sem mættu í þessar þyrluæfingar, en þegar þeir fengu yngra skip – sem var nú ekki nema árinu yngra – þá voru 26 sem mættu.“

Örn segir ljóst að Landsbjörg hafi tryggar áhafnir en það séu aðeins of fáir sem taka virkan þátt. „Búnaðurinn er ekki nógu spennandi, hann selur ekki mönnum þátttöku. Það er ekkert rosalega gaman að fara síendurtekið í útköll á skipum sem ganga mjög hægt og lítil sem engin aðstaða um borð.“

Ný Hafbjörg hvatti sjálfboðaliða

„Í Neskaupstað er það þannig að við erum svolítið að vinna sjómennina aftur inn í útkallið þar. Þeim hefur fjölgað töluvert aftur með þeirri skipaendurnýjun sem var þar. Þannig að það helst alveg í hendur aldur skipanna, virkni félaganna og fjöldi félagsmanna,“ útskýrir Örn.

Vísar hann til þess að notað björgunarskip hafi verið keypt frá Svíþjóð og var það smíðað 1997. Ber það nú nafnið Hafbjörg og er nýjasta björgunarskip Norðfirðinga. Hafbjörg hin eldri var hins vegar smíðuð 1985 og hefur verið flutt til Reykjavíkur þar sem skipið er orðið nýr Ásgrímur S. Björnsson, en eldri Ásgrímur var kominn til ára sinna enda smíðaður 1978. „Þetta sýnir að við erum aðeins sein til í þessum endurnýjunarframkvæmdum. Þörfin er orðin svo rík að við gátum eiginlega ekki annað en stokkið á þetta skip sem bauðst í Svíþjóð til að fasa út þetta elsta skip okkar sem við erum með í Reykjavík. Það var kominn tími á verulegt viðhald þar eða þá að skipta út með þessum hætti.“

Spurður hvort það sé markvisst verið að reyna að höfða til sjómanna til að auka mönnun svarar Örn því játandi. „Við erum alltaf að vinna að því að ná betur til þeirra og ná stærri hópi af þeim til baka í starfið okkar.“ Hann segir sjómönnum hafa fækkað í útkallshópum sjóbjörgunarsveitanna á undanförnum árum.

„Við sjáum að ef við getum verið skemmri tíma í útköllunum eru þeir líklegri til þess að koma. Þá sérstaklega í útstími í þessum útköllum, ef við getum stytt það um kannski helming þá eru þeir að jafnaði viljugri til að koma og vera virkir í starfinu.“

Landsbjörg og skip þess hafa komið miklum fjölda til aðstoðar …
Landsbjörg og skip þess hafa komið miklum fjölda til aðstoðar í gegnum tíðina. Ljósmynd/Landsbjörg

Bilanir tíðari

Álagið á sjóbjörgunarsveitunum hefur það sem af er ári verið nærri meðallagi, að sögn Arnar. „Það eru engar öfgar í útkallafjölda eða í alvarlegri útköllum. Það eru nokkrir Covid-flutningar á skipunum okkar og minni einingum en það eru engin alvarleg veikindi sem hafa verið í því samhengi. Þarna er frekar verið að nota bátana okkar í stað þess að nota farþegabáta svo ekki sé verið að útsetja fleiri fyrir smitum. Það samstarf hefur gengið rosalega vel. Jafnfram hefur samstarfið við sjúkraflutningamennina sem fara með í þessa flutninga gengið rosalega vel.“

Hann segir þetta hafa verið heldur óvenjulegt ár að því leyti að borið hafi á bilunum í skipunum að undanförnu. „Skipið í Vestmannaeyjum var aðeins frá í túrbínuviðgerð, í skipinu sem er að taka við í Reykjavík þurftum við að fara í stóra upptekt á olíuverki í annarri vélinni og síðan er í skipinu á Ísafirði bilun sem er í skoðun og lítur út fyrir að það taki einhvern tíma. Við höfum verið lánsöm með þetta í langan tíma en það er að birtast ein og ein bilun sem við erum búin að vera að vinna úr á þessu ári.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 559,44 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 331,72 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 216,50 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 220,69 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 233,55 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 194,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 2.198 kg
Þorskur 772 kg
Skarkoli 197 kg
Samtals 3.167 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 559,44 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 331,72 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 216,50 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 220,69 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 233,55 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 194,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 2.198 kg
Þorskur 772 kg
Skarkoli 197 kg
Samtals 3.167 kg

Skoða allar landanir »