Nýtt varðskip fær heimahöfn fyrir norðan

Frá Siglufirði. Mynd úr safni.
Frá Siglufirði. Mynd úr safni. Ljósmynd/Mikael Sigurðsson

Bindandi samkomulagi hefur verið komið á varðandi kaup á varðskipinu Freyju, á milli United Offshore Support GmbH og Landhelgisgæslu Íslands.

Frá þessu greinir Landhelgisgæslan í tilkynningu.

Tekið er fram þar að Ríkiskaup og Landhelgisgæsla Íslands hafi efnt til útboðs fyrr á árinu og fimm tilboð borist.

Einungis tvö þeirra reyndust gild og var lægra tilboðinu tekið.

„Með kaupum á varðskipinu Freyju eykst björgunargeta Landhelgisgæslunnar á hafinu til muna en skipið er sérlega vel búið til björgunar- og löggæslustarfa. Skipið var smíðað árið 2010 og hefur undanfarin ár þjónustað olíuiðnaðinn,“ segir í tilkynningunni.

Varðskipið Freyja eins og það kemur til með að líta …
Varðskipið Freyja eins og það kemur til með að líta út í litum Landhelgisgæslunnar.

Afhent í október

Með tilkomu Freyju muni Gæslan hafa á að skipa tveimur afar öflugum varðskipum, sérútbúnum til að sinna löggæslu, leit og björgun á krefjandi hafsvæðum umhverfis Ísland.

„Varðskipið Freyja er að miklu leyti sambærilegt varðskipinu Þór hvað stærð og aðbúnað varðar en það býr til að mynda yfir mun meiri dráttar- og björgunargetu en Þór. Varðskipið Freyja verður 86 metra langt og 20 metra breitt. Skipið verður afhent í litum Landhelgisgæslunnar í október. Kaupverðið nemur rúmum 1,7 milljörðum króna.“

Ákvörðun tekin um heimahöfn

Einnig er greint frá því að tekin hafi verið sú ákvörðun að hafa heimahöfn skipsins á Siglufirði. Mun skipið fá þjónustu þar og á Akureyri eftir þörfum.

„Varðskipið Þór verður sem fyrr gert út frá Reykjavík. Þessari ráðstöfun er ætlað að tryggja öryggi sjófarenda, landsmanna og auðlinda í hafi á sem bestan máta. Með auknum skipaferðum um norðurslóðir fjölgar ferðum stórra flutninga- og olíuskipa með austur- og norðurströndum landsins.

Útlit er fyrir að ferðum skemmtiferðaskipa fjölgi einnig og þarf ekki að fjölyrða um þær hættur sem lífríkinu er búin ef eitthvað hendir eitt af þessum skipum. Þá geta klukkustundir til eða frá skipt sköpum.

Með Þór í Reykjavík og Freyju á Siglufirði hefur viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar umhverfis landið verið aukin og hægara verður um vik að tryggja öryggi sjófarenda, landsmanna og auðlinda í hafi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »