Verja hús og tanka vegna sprengihættu

Mikill eldur er í byggingunni.
Mikill eldur er í byggingunni.

„Við erum að einbeita okkur að því að verja tvö hús og tanka sem eru hér. Það er sprengihætta því það eru olíu-, gas- og súrefnistankar við bygginguna. Við munum ekki fara inn í húsið því þar er bæði eiturefna og sprengihætta,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, slökkviliðsstjóri á Patreksfirði. Slökkvistarf er nú í gangi vegna eldsvoða í nýbyggingu Arctic fish á Tálknafirði. 

Davíð segir að húsið sé mjög illa farið.  „Við erum komin með tök á eldinum með tilliti til þess og höfum tök á því að verja allt sem þarf að verja.“

Hann gerir ráð fyrir því að slökkviliðið muni berjast við eldinn fram eftir degi. 

Unnið er að því að slökkva eldinn.
Unnið er að því að slökkva eldinn. Ljósmynd/Aðsend

Fólk náði að forða sér 

Eldurinn er í kerhúsi hjá fiskeldisfyrirtækinu Arctic fish sem var í byggingu. Ætlunin var að taka það í notkun í júní, að sögn Daníels Jakobssonar viðskiptaþróunarstjóra Arctic fish.

Hann segir að fólk hafi verið að störfum í húsinu þegar eldur kom upp. Allir hafi þó náð að forða sér frá tjóni. Í tilkynningu frá lögreglu segir þó að tveir hafi verið fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl. 

Daníel gerir ráð fyrir því að húsið sé ónýtt þar sem þakið er fallið niður. 

„Miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið er þakið farið að falla saman og mikið tjón," segir Daníel.

Byggingin er um 5.000 fermetrar að stærð og átti að verða þriðja seiðeldisstöðin á svæðinu.

Uppfært:

Daníel kveðst telja húsið ónýtt.
Daníel kveðst telja húsið ónýtt. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.3.23 494,96 kr/kg
Þorskur, slægður 20.3.23 546,83 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.3.23 402,69 kr/kg
Ýsa, slægð 20.3.23 310,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.3.23 237,88 kr/kg
Ufsi, slægður 20.3.23 319,22 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 27.1.23 237,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.3.23 213,00 kr/kg
Gullkarfi 20.3.23 323,80 kr/kg
Litli karfi 20.3.23 0,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.3.23 Geir ÞH-150 Dragnót
Steinbítur 2.444 kg
Skarkoli 1.043 kg
Þorskur 911 kg
Sandkoli 116 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 4.523 kg
20.3.23 Straumey EA-050 Lína
Þorskur 1.542 kg
Ýsa 1.127 kg
Hlýri 112 kg
Steinbítur 41 kg
Karfi 28 kg
Samtals 2.850 kg
20.3.23 Fanney EA-048 Landbeitt lína
Ýsa 963 kg
Þorskur 458 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 1.431 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.3.23 494,96 kr/kg
Þorskur, slægður 20.3.23 546,83 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.3.23 402,69 kr/kg
Ýsa, slægð 20.3.23 310,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.3.23 237,88 kr/kg
Ufsi, slægður 20.3.23 319,22 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 27.1.23 237,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.3.23 213,00 kr/kg
Gullkarfi 20.3.23 323,80 kr/kg
Litli karfi 20.3.23 0,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.3.23 Geir ÞH-150 Dragnót
Steinbítur 2.444 kg
Skarkoli 1.043 kg
Þorskur 911 kg
Sandkoli 116 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 4.523 kg
20.3.23 Straumey EA-050 Lína
Þorskur 1.542 kg
Ýsa 1.127 kg
Hlýri 112 kg
Steinbítur 41 kg
Karfi 28 kg
Samtals 2.850 kg
20.3.23 Fanney EA-048 Landbeitt lína
Ýsa 963 kg
Þorskur 458 kg
Hlýri 10 kg
Samtals 1.431 kg

Skoða allar landanir »