Óvenju mörg erlend skip hjá Slippnum Akureyri

Slippurinn Akureyri hefur m.a. unnið að stálviðgerðum og málun á …
Slippurinn Akureyri hefur m.a. unnið að stálviðgerðum og málun á millidekki á Kanadíska frystitogaranum Saputi. Er þetta eitt af þremur skipum sem félagið þjónustar um þessar mundir. mbl.is/Þorgeir

Það hefur verið mikið um að vera hjá Slippnum Akureyri undanfarið og verður áfram næstu daga og vikur. Eru nú þrjú erlend skip í viðhaldsverkefnum hjá fyrirtækinu, frystitogari og línuskip frá Kanada ásamt grænlenskur frystitogari. Á næstu dögum bætist fjórða skipið við.

Verkefnastaðan er afar jákvæð segir Bjarni Pétursson, sviðsstjóri skipaþjónustu Slippsins, á vef félagsins. Bendir hann þó á að það sé heldur óvenjulegt á þessum árstíma að hafa þennan verkefnafjölda.

„Kanadíska línuskipið Kiwiuq I hefur verið hjá okkur í nokkurs konar vetrargeymslu en með vorinu munum við ljúka nokkrum viðhaldsverkefnum um borð. Síðan erum við komnir á fullt í verkefnum í Saputi sem er frystitogari af stærri gerðinni frá Kanada. Þar eru stórverkefni; stálviðgerðir, viðgerðir á spilum, málun á millidekki, viðgerð á togblökkum, viðgerð á stýri og heilmálun, svo nokkuð sé nefnt. Þetta er mjög skemmtilegt og viðamikið verkefni fyrir okkur,“ segir Bjarni.

Auk Kiwiuq I og Saputi hefur verið sinnt fjölbreyttu viðhaldi á grænlenska frystitogaranum Angunnguaq II, bæði innan skips og á ytra byrði.

Línuskipið Kiwiuq I hefur verið í einskonar vetrargeymslu hjá Slippnum …
Línuskipið Kiwiuq I hefur verið í einskonar vetrargeymslu hjá Slippnum Akureyri. mbl.is/Þorgeir

„Það er mikil samkeppni á þessu þjónustusviði í Norður-Evrópu en fyrir útgerðir í t.d. Kanada og á Grænlandi, líkt og er í þessum tilfellum, þá munar talsvert um að þurfa ekki að sigla lengra en til Íslands til að sækja þjónustuna. Þetta er góður markaður fyrir okkur til að sækja á yfir vetrarmánuðina þegar íslenskar útgerðir vilja síður vera með sín skip í slippþjónustu. Þess vegna falla erlendu verkefnin sér í lagi vel að okkar starfsemi á þessum árstíma og eru okkur mikils virði,“ segir Bjarni.

Eiga von á norskri tvíbytnu

Að meðaltali tekur um fjórar til sex vikur að sinna viðhaldi þessa erlendu skipa, en með vorinu fjölgar þjónustuverkefnum fyrir íslenskar útgerðir. Áður en að því kemur mun þó koma fjórða erlenda skipið og er það norskt skip sem þjónustar fiskeldi á Vestfjörðum.

„Þetta er tvíbytna sem við höfum áður fengið til okkar í minni viðgerðir og sú reynsla sem eigendur skipsins höfðu af okkar þjónustu þá gerði að verkum að þeir völdu að leita beint til okkar í stóru viðhaldi frekar en að sigla skipinu til Noregs. Sem er auðvitað mikil viðurkenning fyrir okkur,“ segir Bjarni en ætlunin er að skipta um tvær aðalvélar skipsins, gera við sex skrúfur og fleira.

„Þetta er sömuleiðis stórt verkefni fyrir okkur og ánægjulegt fyrir okkur að þjónusta vaxandi fiskeldi á Íslandi með þessum hætti,“ segir Bjarni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.076 kg
Steinbítur 244 kg
Ýsa 220 kg
Ufsi 56 kg
Karfi 18 kg
Keila 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 1.638 kg
26.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.711 kg
Þorskur 123 kg
Skarkoli 4 kg
Rauðmagi 3 kg
Samtals 1.841 kg
26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.076 kg
Steinbítur 244 kg
Ýsa 220 kg
Ufsi 56 kg
Karfi 18 kg
Keila 16 kg
Langa 8 kg
Samtals 1.638 kg
26.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.711 kg
Þorskur 123 kg
Skarkoli 4 kg
Rauðmagi 3 kg
Samtals 1.841 kg
26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg

Skoða allar landanir »