„Mér varð litið út um gluggann í morgun og sá þá einhverja torkennilega stróka,“ segir Bjarni M. Jónsson á Kálfafellsstað í Suðursveit frá en Bjarni hafði samband við mbl.is og greindi frá óvenjulegri sýn á hafi úti í morgun – úti fyrir bæ hans þar sem þau hjónin reka gistiheimili og mun sjónfærið líklega hafa verið um þrír kílómetrar að mati Bjarna.
Segir Bjarni nokkurt brim hafa verið á sjó og vind hreyft vel og hafi sýn sú, er við blasti, einna helst minnt á segl á skútu. „Ég greip kíkinn og fór að skoða þetta betur og sá þá að þarna voru stórhveli að blása. Ég kallaði þá á konuna mína sem sá þetta líka. Þetta var niður af Kálfafellsstað og náði í vestur og austur. Ég taldi yfir tuttugu stróka svo þarna hafa líklega verið komnir tuttugu-þrjátíu hvalir,“ lýsir Bjarni.
Datt honum helst í hug að loðnutorfa væri stödd skammt undan landi og hvalir leituðu þar ætis. „Það var nú svo sem þekkt hérna á þessu svæði „í denn“ að þá gengu menn stundum fjörur til að hirða upp loðnu sem rak á land. Núna er náttúrulega loðnutíminn og hún gæti hafa skriðið grunnt með landi,“ segir Bjarni.
Hjá Hafrannsóknastofnun varð Sigurður Þór Jónsson fiskifræðingur fyrir svörum þegar mbl.is sendi þangað fyrirspurn og kvaðst ekki hafa heyrt af loðnutorfu. Sagði svo í skriflegu svari hans:
„[...] en þetta er vitanlega ánægjulegt að einhver loðna er að ganga til hrygningar, þó að við yrðum ekki vör við mikið af henni í umfangsmiklum endurteknum yfirferðum í janúar og febrúar.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 405,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 200,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,36 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 100,96 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 163,13 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 9.511 kg |
Steinbítur | 5.003 kg |
Hlýri | 610 kg |
Langa | 165 kg |
Ýsa | 147 kg |
Ufsi | 95 kg |
Keila | 34 kg |
Karfi | 26 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Samtals | 15.602 kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 405,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 200,44 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,36 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 100,96 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 163,13 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 9.511 kg |
Steinbítur | 5.003 kg |
Hlýri | 610 kg |
Langa | 165 kg |
Ýsa | 147 kg |
Ufsi | 95 kg |
Keila | 34 kg |
Karfi | 26 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Samtals | 15.602 kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |