„Þetta reyndist vera fínasta hráefni,“

Norska loðnuskipið Manon að landa í Neskaupstað í síðustu viku.
Norska loðnuskipið Manon að landa í Neskaupstað í síðustu viku. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Smári Geirsson

„Þetta reyndist vera fínasta hráefni,“ segir Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, um barentshafsloðnu sem hefur fengist til vinnslu.

Í færslu á vef útgerðarinnar er bent á að tvö norsk loðnuskip komu til Neskaupstaðar í mánuðinum með meira en tvö þúsund tonn af loðnu sem veidd var í Barentshafi. Annað skipið landaði 750 tonnum en hitt um 1.300 tonnum.

„Aflinn er vel kældur um borð í skipunum og því er hráefnið gott þrátt fyrir langa siglingu til Íslands. Barentshafsloðnan er hins vegar mun smærri en loðnan sem veiðist hér við land,“ segir Geir Sigurpáll í færslunni.

„Það gekk vel að flokka loðnuna. Flokkarnir voru annars vegar hængur, 35-45 stykki í kílóinu, og hins vegar hrygna. Hrygnan fer til Asíu en hængurinn til Austur-Evrópu. Hængurinn er þegar seldur og verið að skipa honum út. Hrognafyllingin í seinni farminum sem kom til okkar var 16-17%, en nú eru skipin að melda 19-21% hrognafyllingu. Yfirleitt er hætt að frysta þegar hrognafyllingin er komin í 22% og þá er farið að huga að hrognaframleiðslu. Það verður varla framleitt mikið af hrognum núna enda nóg til frá síðustu vertíð.”

Barentshafsloðnan er heldur smærri en loðnan sem veiðist hér við …
Barentshafsloðnan er heldur smærri en loðnan sem veiðist hér við land. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Geir Sigurpáll Hlöðversson
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg

Skoða allar landanir »