Nafn | Navis ehf. |
---|---|
Kennitala | 6503032020 |
Aðsetur | Grandagarði 16, 101 Reykjavík |
Símanúmer | 544 2450 |
Fax | 544 2451 |
Vefslóð | http://www.navis.is |
NAVIS hefur annast nýhönnun á ólíkum gerðum skipa, flestum gerðum fiskiskipa svo sem togurum, nóta- og flotvörpuskipum, frysti- og fullvinnsluskipum og línu- og handfærabátum, en einnig dráttarbátum, mælingabátum, kaupskipum, ferjum og farþegaskipum. NAVIS hefur séð um fjölda breytinga á eldri skipum auk breytinga og nýhönnunar á vinnslulínum. Þá er ótalinn fjöldi annarra verkefna á sérsviðum NAVIS í skipatækni og útgerð.Á seinni árum hafa tjónaskoðanir og matsgerðir af ýmsu tagi, fyrir innlend og alþjóðleg tryggingafélög og skipafélög, verið veitamikill þáttur í starfsemi NAVIS. Margvísleg önnur þjónusta og starfsemi fer fram á vegum NAVIS og í raun má segja að starfsmenn telji sér fátt óviðkomandi á sviði skipa, sjávarútvegs og flutningastarfsemi.
Helstu þættir í sérfræðiþjónustu NAVIS eru:
Skipahönnun, bæði breytingar og nýsmíði. Gerð verklýsinga og útboðsgagna, kostnaðaráætlanir og mat á tilboðum.
Eftirlit og umsjón með verkum, hvort sem það eru nýsmíði, breytingar eða viðgerðir.
Skoðun og ráðgjöf um val á vélbúnaði skipa, hönnun vinnslulína um borð, útvegun tilboða og mat á þeim.
Hallaprófanir, stöðugleikaútreikningar, þykktarmælingar og tonna-mælingar.
Tjónaskoðanir og mat á tjónum á skipum, vélum og farmi. Verklýsingar til endurbóta og viðgerða.
Úttektir af ýmsu tagi, t.d. “Draft eða Bunker Survey”; ástandsskoðanir við kaup, sölu eða leigu skips.
Ráðgjöf um ISM- og ISP-kóða og alhliða ráðgjöf um skiparekstur og skipa- og vélaverkfræði.
Verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækið NAVIS ehf var stofnað 21. mars árið 2003. Stofnendurnir höfðu áratuga reynslu úr mismunandi fyrirtækjum sem tengdust sjávarútvegi, skipahönnun og margvíslegum öðrum verkefnum í þessum geira. Í ársbyrjun 2004 sameinuðu NAVIS og verkfræðistofan Fengur krafta sína og úr varð Navis-Fengur, sem fljótlega breyttist aftur í NAVIS, er þeir síðarnefndu tóku alfarið yfir reksturinn. Starfsemi NAVIS hvílir þannig á traustum grunni sem lagður hefur verið á löngum tíma af sérfræðingum í hönnun og skipaverkfræði. Fyrirtækið sinnir fyrst og fremst þjónustu sem tengist skipum, skipasmíðastöðvum, útgerðum, fiskvinnslufyrirtækjum og skyldum rekstri. Starfsmenn NAVIS búa yfir mikilli reynslu og yfirgripsmikilli þekkingu í faginu sem þeir hafa öðlast við nám og störf bæði hérlendis og víða erlendis.
Á þitt fyrirtæki erindi í Þjónustuskrá 200 mílna? Kynntu þér málið!
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.9.23 | 572,97 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.9.23 | 342,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.9.23 | 350,14 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.9.23 | 275,28 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.9.23 | 301,35 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.9.23 | 291,34 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 27.9.23 | 414,60 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 25.9.23 | 139,79 kr/kg |
27.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.053 kg |
Ýsa | 846 kg |
Steinbítur | 9 kg |
Samtals | 2.908 kg |
27.9.23 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Þorskur | 340 kg |
Keila | 140 kg |
Hlýri | 36 kg |
Ýsa | 26 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Karfi | 6 kg |
Grálúða | 5 kg |
Samtals | 566 kg |
27.9.23 Gísli Súrsson GK 8 Lína | |
---|---|
Þorskur | 706 kg |
Hlýri | 119 kg |
Keila | 74 kg |
Karfi | 44 kg |
Ufsi | 36 kg |
Samtals | 979 kg |