Íslenskur maður vill verða ljósfaðir

Á Íslandi eru ekki karlmenn í stétt ljósmæðra en ekkert …
Á Íslandi eru ekki karlmenn í stétt ljósmæðra en ekkert sem kemur í veg fyrir það. mbl.is/Colourbox

Helga Reynisdóttir ljós­móðir svar­ar spurn­ing­um les­enda mbl.is um allt sem teng­ist meðgöngu og fæðingu. Hér svarar Helga íslenskum manni sem spyr hvort hann geti starfað í stétt ljósmæðra sem ljósfaðir. 

Kæra Helga.

Get ég orðið ljósfaðir?

Kveðja Helgi Þór

Sæll Helgi og takk kærlega fyrir fyrirspurnina! 

Auðvitað getur þú orðið ljósfaðir og við ljósmæður bíðum spenntar eftir karlmönnum í fagið. Sá fyrsti væri að skrá nafnið sitt í spjöld sögunnar því á Íslandi hefur aldrei útskrifast „ljósfaðir“.

Auðvitað þyrftir þú að fara í gegnum nám en fyrir ljósmóðurfræði er forkrafa að vera með B.Sc í hjúkrunarfræði. Við það bætist 2 ára ljósmæðranám á meistarastigi og í því námi eru innifaldar 1.600 klst. í starfsþjálfun. Í hverjum nemendahópi eru 10-12 nemendur og námið er einstaklega skemmtilegt. 

Ég mæli eindregið með þessu starfi og í löndunum í kringum okkar starfa karlmenn innan geirans. 

Kær kveðja,

Helga Reynisdóttir ljósmóðir. 

Þú get­ur sent ljós­mæðrun­um spurn­ingu HÉR.

Helga Reynisdóttir ljósmóðir.
Helga Reynisdóttir ljósmóðir. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert