Átti von á lítilli stelpu á aðfangadag

Kristín Þóra Jónsdóttir naut hverrar mínútu á meðgöngunni.
Kristín Þóra Jónsdóttir naut hverrar mínútu á meðgöngunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristín Þóra var föst í Riga í Lettlandi vegna kórónuveirunnar í sumar vegna vinnu mannsins síns. En þau hafa verið með annan fótinn þar síðan í fyrra. Þau komu til landsins í lok júlí og síðan þá hefur hún verið að snúast í húsamálum, flutningum og verið með iðnaðarmenn á sínum snærum í fallegu litlu húsi sem hún festi kaup á nýverið á besta stað í Reykjavík. „Ég er einnig búin að vera á fullu að njóta þess að vera ófrísk og nú er lítil prinsessa fædd. Æðisleg viðbót við fjölskylduna þar sem við eigum þrjá stráka fyrir.“

Hvernig hefur verið að eiga von á jólabarni?

„Settur dagur var 24. desember svo hún átti að vera nýja jesúbarnið okkar. Þetta er allt svo skemmtilega óvænt og verður bara gaman að halda jól með nýjan fjölskyldumeðlim í hópnum á nýju heimili og á Íslandi. Við erum vön að vera á skíðum á Ítalíu um jólin. Ég var búsett lengi á Ítalíu og höfum við stórfjölskyldan haldið jól og áramót á Ítalíu síðustu 20 árin.“

Ertu flutt í draumahúsið?

„Það er góð spurning, það gæti bara vel verið að þetta sé draumahúsið. Ég hef átt þetta hús í nokkur ár en aldrei búið í því. Ég leigði það út og þegar húsið losnaði í sumar ákváðum við að flytja þangað, fyrst það eru svona miklar breytingar hjá okkur. Það verður öðruvísi að búa í Þingholtunum en í Garðabæ þar sem við erum vön að búa. Það eru auðvitað skrýtnir tímar núna vegna kórónuveirunnar en ég sé fyrir mér að það sé mjög gaman að vera með lítið barn í miðbænum. Það er skemmtilegt að fara í göngutúra umvafinn miðbæjarlífinu. Ég er mikið borgarbarn að því leyti að ég elska að geta labbað út og sinnt því sem ég þarf að gera þó að Reykjavík sé aðeins öðruvísi en aðrar borgir sem ég hef búið í að því leyti að maður er alltaf dálítið háður bíl en það er allavega gaman að rölta út og sjá líf á götum borgarinnar. Vonandi komast hlutirnir í eðlilegt horf fljótlega.“

Þessi mynd var tekin fyrir jólin af Kristínu þegar hún …
Þessi mynd var tekin fyrir jólin af Kristínu þegar hún var að undirbúa jólin og fæðingu dóttur sinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hvað þýða jólin í þínum huga?

„Jólin fyrir mér þýða fjölskylda og vinir saman að njóta útiveru og samverustunda. Frá því ég var fimm ára hef ég haldið flestöll jól á skíðum erlendis ásamt fjölskyldu og vinum og vorum við stundum allt upp í tuttugu og fimm manns saman þegar ég var barn og unglingur. Jólin fyrir mér snúast um góðan mat, útiveru og hreyfingu í frábærum félagsskap.“

Yfirleitt með látlausar skreytingar

Ertu með eitthvað sem þú gerir alltaf fyrir jólin?

„Ég á í rauninni fáar hefðir fyrir jólin þar sem ég hef ekki verið mikið eða oft heima á jólunum svo það hafa aldrei skapast neinar sérstakar hefðir hjá mér. Ég sem dæmi borða oft fisk á aðfangadag. Ég elska fisk og á Ítalíu er það algengur siður að borða fisk á jólunum. Ég skreyti heimilið reyndar alltaf í desember því ég er jólabarn og finnst gaman að upplifa jólastemninguna og hafa heimilið jólalegt.“

Hvað gerir þú aldrei á jólunum?

„Ég spila aldrei jólalög, þau óma í útvarpinu og víða annars staðar vel fyrir jól og það dugar mér alveg svo ég er ekki mikið fyrir að spila jólalög sjálf í bílnum eða heima fyrir.“

Hvernig skreytirðu fyrir jólin?

„Ég er yfirleitt með látlausar skreytingar, ekkert yfidrifið. Enda er ég oftast ekki heima á þessum tíma. Ég er alltaf pínu skotin í svona smá gamaldags skrauti og elska til dæmis að hafa jólatréð blandað af alls konar sem er ekki í stíl. Í fyrra áskotnaðist okkur allt jólaskrautið frá tengdaforeldrum mínum sem var til þegar maðurinn minn var lítill og fór það á jólatréð í bland við annað sem við eigum fyrir. Svo elska ég jólarósir og finnst þær algerlega ómissandi sem og furugreinar sem ég nota mikið í vasa og skálar með kertum og ljósaseríum. Ég set jafnvel epli og mandarínur með og svo auðvitað fullt af kertum en ég kveiki á kertum allt árið. Stundum á daginn líka.“

Alltaf verið mikill gaur í sér

Áttirðu falleg og skemmtileg jól þegar þú varst stelpa?

„Ég átti æðisleg jól sem stelpa. Mínar minningar eru flestallar frá Austurríki þar sem stórfjölskyldan eyddi langflestum jólum þegar ég var barn og unglingur, amma og afi, amma, frændfólk og frændsystkin mín á skíðum allan daginn og oftar en ekki var vinafólk líka með í för svo þetta var alltaf ævintýri og Austurríki er mjög jólalegt umhverfi, mikil stemning þar í kringum hátíðirnar. Þetta var ekki algengt á þessum tíma og voru samgöngurnar ekkert í líkingu við það sem er í dag og keyrðum við oft í tíu til tólf klukkustundir frá Þýskalandi eða Lúxemborg til að komast á áfangastað enda alveg þess virði til að eyða jólum og áramótum í vetrarparadís. Það komu alltaf jólasveinar á hótelin sem við vorum á og stórt jólatré með tilheyrandi skreytingum og allir krakkar fengu gjöf en svo vorum við oftast líka með tré sjálf þar sem við fjölskyldan komum saman og opnuðum pakka og héldum okkar jól.“

Áttu skemmtilega minningu um þig á jólunum?

„Ein jólin gaf amma Hjalta frænda mínum sem er þremur árum yngri en ég geggjaðan svartan fjarstýrðan pallbíl í jólagjöf og ég var pínu öfundsjúk, hann var svo flottur. Við Hjalti erum systkinabörn og eyddum öllum jólum saman á skíðum. Nema hvað ég fékk alveg eins bíl nema rauðan frá ömmu líka svo við gætum leikið okkur saman í útlöndunum. Ég var svo hamingjusöm og glöð með þessa gjöf því ég hef alltaf verið pínu gaur í mér og hef alltaf elskað bíla enda alin upp mikið á fjöllum í jeppaferðum og á snjósleða svo þetta var mjög spennandi.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert