Serena Williams og dóttirin í stíl

Tennisstjarnan Serena Williams.
Tennisstjarnan Serena Williams. AFP

Besta tenniskona allra tíma, Serena Williams, birti á dögunum skemmtilega mynd af sér og dóttur sinni Olympiu á samfélagsmiðlinum Instagram.

Á myndinni eru þær í eins bleikum íþróttagalla en á peysu Serenu er áletrað „Mama“ en á peysu dóttur hennar er textinn „I got it from my mama“, sem útleggst „mér áskotnaðist þessi peysa frá móður minni“.

Ekki nóg með það heldur eru þær í sömu stellingu. Vinsælasta athugasemdin við myndina er frá pabba Olympiu, Alexis Ohanian, en hann setur tvö rauð hjörtu í lyndistákn og skrifar „stelpurnar mínar tvær“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert