Meðgöngukílóin skipta ekki máli

Katy Perry á eina dóttur.
Katy Perry á eina dóttur. AFP

Söngkonan Katy Perry eignaðist sitt fyrsta barn í ágúst í fyrra með leikaranum Orlando Bloom. Hún segir í viðtali við Variety að ekkert geti búið fólk undir þá skilyrðislausu ást sem fylgir barni. Hún pælir lítið í samfélagsmiðlum og segir hamingju dóttur sinnar skipta meira máli en einhver glansmynd. 

Perry segir að glansmyndin af móðurhlutverkinu sé skökk mynd sem samfélagsmiðlar sýna. „Ég náði að njóta minnar upplifunar. Ég er enn fimm kílóum þyngri en ég var þegar ég varð ólétt en ég er ekki að flýta mér. Það er ár liðið. Ég hef meiri áhuga á hennar hamingju og minni hamingju og andlegri liðan. Hormónar eru ... áhugaverðir,“ sagði Perry. 

Söngkonan segir að fyrstu sex vikurnar hafi verið mjög áhugaverðar. „Þetta er stærsta breyting í heimi. Þú berð ábyrgð á annarri manneskju sem getur ekki einu sinni haldið höfði. Það er ekkert grín og þú ert mikilvægust. Og það er best. Allt sem skiptir ekki máli hverfur og jafnvægi kemst á. Ég kann vel við að lifa í hinum raunverulega heimi.“

Katy Perry og Orlando Bloom eignuðust barn saman í ágúst …
Katy Perry og Orlando Bloom eignuðust barn saman í ágúst í fyrra. AFP
Hamingja dóttur Perry og andleg heilsa skiptir Perry miklu máli.
Hamingja dóttur Perry og andleg heilsa skiptir Perry miklu máli. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert