Gimsteinn Hvergerðinga falur fyrir 275 milljónir

Skyrgerðin í Hveragerði er til sölu.
Skyrgerðin í Hveragerði er til sölu.

Margir þekkja Skyrgerðina í Hveragerði þar sem nú er að finna veitingastað og gistiheimili með 13 herbergjum. Húsið og byggingarnar sem henni fylgja, alls 771 fermetri, eru til sölu fyrir 275 milljónir en fasteignamat er 133,7 milljónir. 

Ölfus­hrepp­ur byggði Þing­húsið í Hver­agerði árið 1930 og Mjólk­ur­bú Ölfus­inga byggði Skyr­gerðina á jarðhæð þing­húss­ins á sama tíma en húsið var teiknað af Guðjóni Samú­els­syni, húsa­smíðameist­ara rík­is­ins. Í Skyr­gerðinni var fram­leitt skyr sem var ein helsta sölu­vara Mjólk­ur­bús­ins, einnig var þar fyrsta fram­leiðsla á jóg­úr­t hér á landi sem var seld í gler­flösk­um og kölluð heils­umjólk.

Í Skyrgerðinni er meðal annars notalegur veitingastaður.
Í Skyrgerðinni er meðal annars notalegur veitingastaður.

Allt frá því húsið var byggt hef­ur það verið eins kon­ar hjarta bæj­ar­ins með þing­hald, mat­ar­gerð og menn­ingu sem miðju. Frá miðri síðustu öld hef­ur hót­el- og veit­ingastaðarekst­ur verið í hús­inu og þing­húsið verið nokk­urs kon­ar menn­ing­ar­set­ur Hver­gerðinga og á tíma­bili einn aðalsam­komu­staður­inn. Þar voru sýnd­ar leik­sýn­ing­ar, bíó­sýn­ing­ar, hald­in brúðkaup, dansi­böll og tón­leik­ar lands­frægra lista­manna.

Elfa Dögg Þórðardótt­ir keypti Skyrgerðina árið 2015 og fór í kjölfarið í miklar framkvæmdir og opnaði samnefndan veitingastað og gistiheimili. 

Af fasteignavef Mbl.is: Skyrgerðin 25

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert