Stormi þykir sláandi lík mömmu sinni

Mæðgurnar Kylie Jenner og Stormi.
Mæðgurnar Kylie Jenner og Stormi. Skjáskot/Instagram

Aðdáendur athafnakonunnar og snyrtivörumógúlsins Kylie Jenners eru í sjokki yfir því hversu mikið Stormi, dóttir hennar, líkist mömmu sinni. 

Nýlega birtist gömul mynd af Jenner frá því hún var barnsung á netmiðilinn Reddit. Myndin kom mörgum á óvart því flestir héldu að þetta væri mynd af Stormi, ekki mömmu hennar. Aðdáendur Kardashians-fjölskyldunnar halda uppi umræðuþræði þar sem allt sem tengist fjölskyldunni á einhvern hátt er krufið til mergjar. 

Það er vel hægt að sjá að Stormi er dóttir …
Það er vel hægt að sjá að Stormi er dóttir mömmu sinnar. Kylie Jenner er í bleika stubbabúningnum. Samsett mynd

Aðdáendurnir báru saman myndir af ungri Jenner og Stormi, sem nú er fjögurra ára gömul, og líkindin leyndu sér ekki. Fréttamiðillinn The Sun greindi frá. 

„Guð minn góður, ég hef aldrei tekið eftir því fyrr hversu sláandi líkar þær eru,“ skrifaði einn notandi Reddit og var ansi hissa á líkindum þeirra mæðgna. Fjölmargir tóku undir þessi orð enda hefur því hingað til verið haldið fram að Stormi líkist föður sínum, Travis Scott, meira en móðurinni.

Þau Kylie Jenner og Travis Scott eiga saman börnin tvö, Stormi Webster og dreng sem fæddist í febrúar. Drengnum hafði verið gefið nafnið Wolf en skyndilega hættu foreldrarnir við það nafn og því er drengurinn nafnlaus enn sem komið er. Að minnsta kosti á meðal almennings.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert