Lét niðrandi orð falla um barnsmóður sína

Sonur parsins, Leodis, fæddist í febrúar.
Sonur parsins, Leodis, fæddist í febrúar. Samsett mynd

Bandaríska söng– og leikkonan, Keke Palmer, var á meðal gesta á tónleikum Usher í Las Vegas á dögunum og virtist njóta sín til hins ítrasta í góðra vina hópi.

Palmer fékk kaldar kveðjur á samfélagsmiðlum frá barnsföður sínum, en Darius Daulton Jackson lét niðrandi orð falla um kærustu sína á Twitter eftir að hann sá myndband frá tónleikunum á samfélagsmiðlum. 

„Í hverju ertu? Þú ert móðir,“ skrifaði Jackson við myndskeið sem birtist á Twitter. Jackson var greinilega ósáttur við fataval kærustu sinnar, en í myndskeiðinu sést Palmer dansa við Usher. Hún klæddist svartri g–strengssamfellu og gegnsæjum mesh–kjól.

Palmer og Jackson eignuðust sitt fyrsta barn saman í febrúar, son sem þau nefndu Leodis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert