Greindir risar og heimskir púkar eftir 100.000 ár?

Vera úr Hringadróttinssögu. Gæti ófríðari tegund manna litið þannig út …
Vera úr Hringadróttinssögu. Gæti ófríðari tegund manna litið þannig út eftir 100.000 ár? mbl.is

Breskur þróunarfræðingur, Oliver Curry, spáir því að mannkynið muni skiptast í tvær undirtegundir á næstu 100.000 árum. Annars vegar verði fólk hávaxið, grannt, hraust, gáfað og skapandi en hins vegar óæðri tegund manna sem verði ekki eins greind en það fólk verði ófrítt og kubbslegt. Reynist þessi spá rétt má búast við því að jarðarbúar verði annað hvort greindir risar eða heimskir púkar.

Curry eyddi tveimur mánuðum í þessa rannsókn sína. Hann spáir því að á næstu þúsund árum muni mannskepnan þróast í það að vera kaffibrúnir slánar, um 180 - 210 sm á hæð. En þar sem fólk velji sér maka sé líklegt að fólk muni þróast í tvær áttir, fíngert fólk og grófgert.

Þannig verði mannkynið skipt í tvær ólíkar tegundir, önnur muni hafa alla jákvæða eiginleika manna en hin alla þá neikvæðu. Þá muni kynþættir mást út og allir verða með svipaðan hörundslit. Sky segir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson