Poppsöngkonan Britney Spears hefur á liðnum misserum oftar verið í fréttum fyrir vandræðagang en velgengni á tónlistarsviðinu. Þá hefur hún verið gagnrýnd fyrir að sinna sonum sínum tveimur ekki sem skyldi.
Nú greina fjölmiðlar hins vegar frá því að Spears hafi með góðra manna hjálp unnið í því að koma andlegu hliðinni í lag, og að svo hafi ábyrgð hennar gagnvart börnunum styrkst að hún sé reiðubúin að hætta við tónleikaferð ef drengirnir geti ekki ferðast með henni. Fyrirhugað er að hún leiki á 44 stöðum á svokölluðum Cirkus-túr og á hann að hefjast 3. mars.