Malcolm in the Middle - stjarna fékk slag

Fjölskyldan úr þáttunum Malcolm in the Middle - þar sem …
Fjölskyldan úr þáttunum Malcolm in the Middle - þar sem Muniz fór með aðalhlutverk. Mynd / Wikipedia

Leikarinn Frankie Muniz, sem forðum gerði garðinn frægan sem Malcolm í þáttunum Malcolm in the Middle fékk vægt heilablóðfall á dögunum.

„Lenti á spítala á föstudaginn en ég fékk það sem kallast vægt heilablóðfall. Ekki gaman að því. Ég verð að fara að hugsa betur um líkamann, er að eldast!“ tísti hinn 27 ára leikari á Twitter-síðu sína í kjölfarið. Virðist sem betur hafi farið en á horfðist.

Þrátt fyrir að frægðarstjarna Muniz hafi heldur dalað eftir að þættirnir um Malcolm og fjölskyldu runnu sitt skeið - en þeir gengu á árunum 2000 til 2006 - er Muniz engu að síður enn að leika auk þess sem hann spilar á trommur með indí-rokksveitinni Kingsfoil. Til stóð að hann léki einmitt á tónleikum með bandinu fyrrnefnt föstudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson