Game of Thrones-leikkonan Sophie Turner tilkynnti í gær, sunnudag, að hún hefði trúlofast kærasta sínum Joe Jonas. Ekki er langt síðan fréttir bárust af trúlofun Kits Haringtons og Rose Leslie.
Turner er aðeins 21 árs en hefur gert garðinn frægan í sjónvarpsþáttunum geysivinsælu Game of Thrones. Jonas, sem er hins vegar 28 ára, sló fyrst í gegn í bræðrahljómsveitinni Jonas Brothers. Parið hefur verið saman í um ár.
Fréttir af trúlofun Kits Haringtons og Rose Leslie bárust í lok september en þau léku bæði í þáttunum. Það lítur því út fyrir því að mikil veisluhöld muni ríkja á næstunni á meðal leikara Game of Thrones.