Breska konungsfjölskyldan tilkynnti í dag að Eugenie prinsessa af York væri trúlofuð kærasta sínum Jack Brooksband. Eins og allt fínna fólk skelltu verðandi hjónin sér í trúlofunarmyndatöku þar sem trúlofunarhringurinn fékk sitt pláss.
Það var blaðaljósmyndarinn Jonathan Brady sem tók myndirnar af nýtrúlofaða parinu í Buckingham-höll. Það voru hins vegar frægir tískuljósmyndarar sem tóku trúlofunarmyndirnar þegar frændur prinsessunnar, þeir Vilhjálmur og Harry, fóru í trúlofunarmyndatöku.
Prinsessan var heldur ekki í margra milljóna króna kjól líkt og Meghan Markle heldur klæddist kjól frá Erdem og skóm frá Jimmy Choo.
Eins og venja er fékk trúlofunarhringurinn sitt pláss en á hringnum er safírsteinn umlukinn demöntum.