Skapa femíníska útópíu

„Netið hefur enn ekki verið algjörlega undirlagt feðraveldinu. Ein kenning …
„Netið hefur enn ekki verið algjörlega undirlagt feðraveldinu. Ein kenning vinnuhópsins er að við getum smeygt okkur inn í netið, mótað það og skapað femíníska útópíu,“ segir Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og heldur áfram til útskýringar að útópían felist í rými þar sem konur geti fundið samkennd og samstöðu.

„Áhorfendur mega búast við að þeim sé skemmt, þeim ögrað með forminu og þeir vaktir til umhugsunar um netnotkun og sjálfsmyndir okkar í nútímanum,“ segir Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, ein sjö leikkvenna sem taka þátt í leikhúsgjörningnum 35 x Me and Some Actresses eða 35 x ég og nokkrar leikkonur sem sýndur verður í Tjarnarbíói 24. og 25. mars kl. 19 og 21 báða daga, en sýningin tekur nákvæmlega tvo klukkutíma í flutningi. Gestaleikkonan er Kristbjörg Kjeld.

Gagnrýna staðlaðar hugmyndir

Spurð um tilurð sýningarinnar rifjar Bergdís upp að haustið 2016 hafi finnska leikdúóið Blaue Frau kallað eftir samstarfi við listamenn frá Norðurlöndunum vegna sýningarinnar. „Finnsk vinkona mín, Anna Korolainen sem rekur með mér leikhópinn Spindrift Theatre, hafði bent mér á þennan hóp og ég séð nokkrar sýningar. Mér fannst þetta verkefni hljóma svo spennandi að ég sendi inn mína frásögn,“ segir Bergdís og bendir á að umsækjendur hafi átt að lýsa því hvernig hið persónulega og faglega skarast og sameinast á netinu í starfi þeirra sem leikkona. 

Bergdís Júlía Jóhannsdóttir fremst fyrir miðju ásamt leikhópnum.
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir fremst fyrir miðju ásamt leikhópnum.

„Blaue Frau hlaut alls 139 umsóknir frá norrænum leikkonum sem allar virtust eiga í svipuðum vanda. Í kjölfarið á áheyrnarprufunum voru fimm leikkonur valdar til þess að taka þátt í, og skapa þessa gagnvirku þátttökuleiksýningu,“ segir Bergdís, en auk hennar eru í leikhópnum Lidia Bäck, Sepideh Khodarahmi, Nina Matthis, Klara Wenner Tångring, Sonja Ahlfors og Joanna Wingren.

Tvær síðastnefndu leikkonurnar stofnuðu Blaue Frau árið 2005 eftir að hafa verið hluti af dragleikhópnum Sub Frau, sem íslenska leikkonan María Pálsdóttir stofnaði ásamt sjö norrænum leikkonum í magisternámi þeirra við Leiklistarháskólann í Helsinki um aldamótin. „Blaue Frau hefur verið öflugt í að gagnrýna staðlaðar hugmyndir um samfélagið en ávallt á uppbyggilegan hátt og með það að markmiði að breytingar leiði til hins betra,“ segir Bergdís.

Netið eins og leikhúsið

„Ég kýs að lýsa sýningunni sem gagnvirku þátttökuleikhúsi. Í upphafi sýningar fylla áhorfendur út spurningalista sem ákvarðar hvaða leið þeir fara í gegnum sýningarrýmið. Við leiðum áhorfendur að ákveðnum gagnvirkum stöðvum þar sem fram fer ákveðin kennsla. Við leiðbeinum áhorfendum í að þróa og setja fram persónu sína á netinu,“ segir Bergdís og bendir á að sjálfsmyndin sé meðal þess sem sé til skoðunar í sýningunni.

„Í nútíma samfélagi er það ekki einungis leikarinn sem stendur frammi fyrir stöðugum vangaveltum um eigin sjálfsmynd, heldur eru flestallir einstaklingar í stöðugri endurskoðun um hverjir þeir eru og hvernig þeir birtast öðrum. Þetta er bein afleiðing af daglegri notkun mismunandi samfélagsmiðla,“ segir Bergdís og bendir á að netið líkist leikhúsinu að því leyti að notendur/þátttakendur eru sífellt að leika og fylgjast hver með öðrum.

Leikkonurnar Klara Wenner Tångring og Bergdís Júlía Jóhannsdóttir.
Leikkonurnar Klara Wenner Tångring og Bergdís Júlía Jóhannsdóttir.

Samkennd og samstaða

Að sögn Bergdísar er markmið sýningarinnar að leiðbeina áhorfendum hvernig þeir geta tekið meira rými í hinum stafræna heimi. „Netið hefur enn ekki verið algjörlega undirlagt feðraveldinu. Ein kenning vinnuhópsins er að við getum smeygt okkur inn í netið, mótað það og skapað femíníska útópíu,“ segir Bergdís og heldur áfram til útskýringar að útópían felist í rými þar sem konur geti fundið samkennd og samstöðu. „Við sjáum það nú þegar gerast á samfélagsmiðlum þar sem konur standa saman og hvetja hver aðra til dáða. Hér er því um að ræða listræna tilraun þar sem leitast er við að skapa annan valmöguleika á móti kynbundinni menningu sem hefur orðið meira áberandi í kjölfar byltinga á borð við #metoo.“

Titillinn 35 x Me and Some Actresses vísar til þess að aðeins komast 35 áhorfendur á hverja sýningu. Verkið var frumsýnt í Lilla Teatern í Helsinki í febrúar og verður sýnt í Svíþjóð í haust og í Danmörku vorið 2019. „Einnig hefur sýningunni verið boðið til Brussel og fleira er á prjónunum. Við munum sýna hana út næsta ár,“ segir Bergdís, en þess má geta að sýningin er leikin á ensku. Dramatúrg sýningarinnar er Stefan Åkesson, leikmynd hannar Kristina Sedlerova búningar, förðun og hárgreiðsla var í höndum Malin Nyqvist, lýsingu hannar Meri Ekola og hljóð Stefan Johansson.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson