Samfélagsmiðlastjarnan Yuseir Nassin, sem birtir daglega myndbönd á Facebook-síðunni Nas Daily hitti systur sína í 20 tíma hér á Íslandi fyrir stuttu. Þau komust að því í sameiningu að 300 bandaríkjadalir eða rúmar 30 þúsund íslenskar krónur, duga skammt.
Í myndbandinu segja þau frá því að það kosti 40 dali að fara í skoðunarferð um borgina, 100 dali að fara í Bláa lónið og að íslenskt loft í dós kosti 5 dali.
Hann segir að fólk þurfi að fara varlega á Íslandi ef það ætli ekki að glata aleigunni, því Ísland sé dýrasta land í heimi. Nas Daily er með um 6,8 milljónir fylgjenda á Facebook, en Nas birtir einnar mínútu löng myndbönd á hverjum degi. Hann gerði fleiri myndbönd í Íslandsferð sinni, meðal annars um Jónu og Gunnar sem hættu saman því þau komust að því að þau væru skyld.