Lögskilja ekki fyrr en Affleck lýkur meðferð

Þegar allt lék í lyndi.
Þegar allt lék í lyndi. AFP

Leikarinn Ben Affleck og leikkonan Jennifer Garner hafa komist að samkomulagi um skiptingu eigna sinna og forræði barna sinna samkvæmt TMZ. Þau munu þó ekki lögskilja fyrr en Affleck lýkur meðferð, en hann fór í áfengismeðferð í síðustu viku. 

Garner og Affleck giftu sig árið 2005 en hafa ekki verið saman síðan árið 2015. Þau skrifuðu ekki undir samninga um eignaskiptingu áður en þau giftu sig, svo það hefur tekið nokkurn tíma að komast að samkomulagi. Þau hafa deilt forræði yfir börnum sínum þremur síðustu ár og hefur það gengið vel. Því munu þau halda áfram að deila forræðinu. 

Affleck er nú í áfengismeðferð, en Garner keyrði hann í meðferðina í síðustu viku. Hann hefur átt í erfiðri baráttu við áfengisfíkn síðustu ár og fór í meðferð í desember síðastliðnum einnig. Hann fór einnig í meðferð árið 2001.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson