Birti bikinímynd og missti lækningaleyfið

Dr. Mwe San langaði að verða fyrirsæta.
Dr. Mwe San langaði að verða fyrirsæta. skjáskot/Instagram

Hin 29 ára gamla Mwe San, fyrrum læknir í Búrma (Mjanmar), missti lækningaleyfið sitt eftir að hafa birt myndir af sjálfri sér á bikiní á Instagram. 

San langaði aldrei til að verða læknir, en foreldrar hennar voru staðráðin í að hún myndi klára að mennta sig og skráðu hana í læknanám. Sjálf vildi hún verða fyrirsæta. Fyrir tveimur árum lét hún draum sinn verða að veruleika, lagði hvíta sloppinn á hilluna og hóf störf sem fyrirsæta.

San hefur birt myndir af sér fáklæddri á Facebook síðan þá. Heilbrigðisyfirvöld í Búrma voru síður en svo ánægð með það og telja hana rýra orðspor lækna þar í landi. Þau sendu henni bréf þess efnis í janúar síðastliðinn og báðu hana að fjarlægja allar myndir af sér fáklæddri, annars ætti hún í hættu að missa lækningaleyfi sitt.

Hún neitaði að fara að fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda fékk svo bréf í júní að hún hefði misst lækningaleyfi sitt. 

Í viðtali við New York Times segir hún að það ríki mikið kynjamisrétti í Búrma. „Þeir vilja ekki að konur séu háttsettar. Og þeir meta verðleika kvenna út frá klæðnaði þeirra. Þeir vilja ekki einu sinni að við göngum í buxum,“ segir San.

Ógilding á lækningaleyfi San skýtur sökku við sé litið til heilbrigðiskerfis Búrma en samkvæmt yfirvöldum þar í landi þyrfti að tvöfalda fjölda starfandi lækna. Búrma er fjölmennt land en um 53 milljónir búa þar. 

Margir hafa ekki efni á að fara til læknis og segjast sumir þurfa að múta læknum til að fá almennilega meðferð. Ríkara fólk getur farið á einkastofnanir, en ástand ríkissjúkrahúsanna eru alls ekki til fyrirmyndar. 

Fréttin er unnin upp úr frétt New York Times.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson