Glöggir aðdáendur Kim Kardashian velta því nú fyrir sér hvort Kim Kardashian sé með sex tær á öðrum fæti eða hvort um enn ein „fótósjopp“ mistökin sé að ræða.
Á tveimur nýjustu myndunum af henni og systur hennar Kylie Jenner má sjá móta fyrir sjöttu tánni á vinstri fæti hennar. Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem þær systur eru grunaðar um að hafa breytt myndum sínum í myndvinnsluforriti. Í síðustu viku birtu þær myndir úr sömu myndatöku þar sem hönd Kardashian er afmynduð.
Kardashian er samt bara með 5 tær á hvorum fæti líkt og flestir svo hér virðast vera á ferðinni enn ein „fótósjopp“-mistökin.
View this post on InstagramA post shared by Kylie Cosmetics (@kyliecosmetics) on Aug 21, 2019 at 6:06pm PDT
View this post on InstagramA post shared by Kylie Cosmetics (@kyliecosmetics) on Aug 21, 2019 at 8:19am PDT