„Hvenær fær brjóst Jackson afsökunarbeiðni?“

Bette Midler vill að brjóst Jackson fái afsökunarbeiðni frá Timberlake.
Bette Midler vill að brjóst Jackson fái afsökunarbeiðni frá Timberlake. Dave Kotinsky

Tónlistarkonan Bette Midler finnst brjóst tónlistarkonunnar Janet Jackson eiga einnig skilið afsökunarbeiðni frá Justin Timberlake.

„Hvenær fær brjóst Janet Jackson afsökunarbeiðni? #RéttlætiFyrirJanet“ skrifaði Midler á Twitter í vikunni.

Timberlake baðst afsökunar í síðstu viku á því að hafa haldið í hönd mótleikkonu sinnar, Alishu Wanwright á bar New Orleans í síðasta mánuði. 

Atvikið sem Midler vísar í er þegar Timberlake greip í brjóst Jackson á tónleikum í hálfleik Ofurskálarinnar árið 2004. Kjóll hennar rifnaði og afleiðingarnar voru þær að nakið brjóst Jackson sást í beinni útsendingu. 

Að hætti Bandaríkjamanna vatt málið að sjálfsögðu upp á sig og var sjónvarpsstöðin CBS sektuð fyrir nakið brjóstið. Sektargreiðslunni var áfrýjað og að lokum dæmd ógild. Málið var þó ekki búið þar og fór á endanum fyrir hæstarétt Bandaríkjanna. Hæstiréttur vísaði málinu aftur niður á lægra dómsstig þar sem CBS var að lokum sýknað.

Málið þótti hið mesta hneykslismál á sínum tíma.
Málið þótti hið mesta hneykslismál á sínum tíma.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson