Nýjasta parið í Hollywood, Ben Affleck og Ana de Armas, fóru í hörkusleik í nýjasta tónlistarmyndbandi Residente. Affleck og de Armas hafa verið í sambandi í nokkra mánuði og hafa sést saman hér og þar í Hollywood síðustu vikur.
Myndbandið er við lagið „Antes Que El Mundo Se Acabe“ sem útleggst á íslensku „Áður en heimurinn ferst“. Tónlistarmaðurinn Residente er frá Púertó Ríkó og fær hann fleiri þekkt pör í Mið-Ameríku til að kyssast í myndbandinu.
Affleck og de Armas kynntust í nóvember 2019 við tökur á kvikmyndinni Deep Water. Þegar tökum lauk fyrr á þessu ári skelltu þau sér í ferðalag til Kúbu og Kosta Ríka, en de Armas er ættuð frá Kúbu.