Amma Johnson á enn 13-14 ljón og tígrisdýr

Tippi Hedron á enn þá nokkur tígrisdýr og ljón.
Tippi Hedron á enn þá nokkur tígrisdýr og ljón. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Dakota Johnson segir að amma hennar, leikkonan Tippi Hedren, eigi enn þá 13 til 14 ljón og tígrisdýr. Hedren varð 90 ára á þessu ári og er enn í fullu fjöri.

Hedren heillaðist af viltum dýrum árið 1971 og hefur síðan þá bjargað fjölda dýra úr dýragörðum. Um tíma átti hún 60 stórketti en fækkað hefur í hópnum. Í viðtali við Graham Norton sagði Johnson að hún hafi ekki alist upp með dýrunum svipað og móðir hennar, Melanie Griffith, gerði. 

„Þegar ég fæddist voru þau öll komin í risastór búr og það var miklu öruggara. Þetta var ekki jafn klikkað og þegar þau byrjuðu fyrst,“ sagði Johnson. Þegar Hedron byrjaði að bjarga kattardýrunum á 8. áratugnum leyfði hún þeim að ganga frjálsum um hús sitt og garða.

Það fór svo að Hedron varð fyrir töluverðum slysum og fjölskylda hennar líka, enda ekki í eðli dýranna að búa með fólki. Hedron hefur sjálf sagt í viðtölum að það hafi verið ótrúlega heimskulegt að leyfa dýrunum að vera frjálsum. 

Árið 1983 stofnaði hún Roar-samtökin til þess að segja fólki frá hættunni sem fylgir því að halda villt dýr heima hjá sér. 

View this post on Instagram

My Mama got a new white tiger. His name is Jett😘. Shambala.org @tippihedrenofficial

A post shared by MELANIE (@melaniegriffith) on Nov 6, 2019 at 6:34pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson