Berglind Guðmundsdóttir
„Margir tala um það að Covid hafi hjálpað þeim að leita inn á við. Að hægja á öllu. Stærsti hlutinn í kringum mig hefur upplifað að eitthvað gott hafi komið út úr þessu,“ segir Sólveig Ösp Haraldsdóttir um jákvæð áhrif Covid í viðtali við Berglindi Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðing í Dagmálaþætti dagsins.
Flestir sjái þennan aukna tíma með fjölskyldunni sem mjög jákvæða breytingu. „Fólk vill samt almennt ekki tala um að því finnist bara æðislegt að vera í þessu rólega lífi,“ segir Sólveig Ösp sem er viðskiptalögfræðingur og fyrrverandim bankastarfsmaður.
Fyrir nokkrum árum sneri hún algjörlega við blaðinu og hóf vegferð sína að innihaldsríkara og betra lífi. Í dag heldur hún úti facebooksíðunni „Gleðilegt líf – lærðu að elska þig“ sem ætlað er að veita þeim sem eiga leið hjá innblástur og hvata með jákvæðum og uppbyggilegum skilaboðum.
Ásamt því vinnur hún að því að byggja upp fyrirtæki sitt, sem felst í því að hjálpa fólki að komast í betri líðan, lifa í sátt við sjálft sig og fjölga gleðistundunum í lífinu, það gerir hún meðal annars með námskeiðinu „Lærðu að elska þig“.
Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur fyrir áskrifendur Morgunblaðsins hér en einnig er hægt að kaupa vikupassa.