Laddi 75 og Hannah Gadsby frestað

Sena hefur frestað viðburðum sem fara áttu fram nú í …
Sena hefur frestað viðburðum sem fara áttu fram nú í janúar vegna framlengingu á sóttvarnaráðstöfunum.

Uppistandi með Hönnuh Gadsby sem fara átti fram 14. janúar næstkomandi hefur verið frestað til 28. október vegna áframhaldandi samkomutakmarkana. Afmælissýningum Ladda, sem fara áttu fram á afmælisdag hans, 20. janúar og 21. janúar, hefur verið frestað til 18. og 19. mars næstkomandi. 

Í tilkynningu frá Senu segir að miðar á viðburðina gildi sjálfkrafa áfram á nýju dagsetningarnar og þurfa miðaeigendur ekkert að aðhafast, nema nýju dagsetningarnar henti ekki. Þá sé hægt að óska eftir endurgreiðslu. 

Fjöldi viðburða sem fara áttu fram nú í janúar hafa verið frestað vegna núgildandi sóttvarnaráðstafana. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra greindi frá því á þriðjudag að þágildandi ráðstafanir yrðu framlengdar til 2. febrúar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson