Allir hressustu Eurovisionaðdáendurnir voru mættir snemma fyrir utan Pala Olimpico höllina í kvöldsólinni í kvöld. Dagur er að kvöldi kominn og framundan er Eurovision söngvakeppnin.
Sænskir aðdáendur mættir á svæðið.
mbl.is/Sonja Sif
Ítalskir Eurovisionaðdáendur auk eins bandaríkjamanns sem hingað er kominn til að skrifa um Eurovision.
mbl.is/Sonja Sif
Belgískir aðdáendur.
mbl.is/Sonja Sif
„Heia Norge,“ sögðu þessir eiturhressu norðmenn á leið í höllina.
mbl.is/Sonja Sif
Pólskir Euronöttarar í stuði.
mbl.is/Sonja Sif
Hér þarf enginn að verða svangur eða þyrstur á meðan beðið er eftir keppni.
mbl.is/Sonja Sif
Ítalskt glæsimenni með flugdreka.
mbl.is/Sonja Sif