Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson mun koma fram á Þjóðhátíð í fyrsta sinn í ár. Loks mun frægasti smellur Herberts, Can't walk away hljóma um Herjólfsdalinn.
Herbert bætist í hóp þeirra frábæru listamanna sem koma fram á hátíðinni, en þar má meðal annars nefna Jóhönnu Guðrúnu, Röggu Gísla, Hreim, Aldamótatónleikana, Bríet, Bubba og Birgittu Haukdal.
Það má því búast við mikilli stemmningu í dalnum eftir tveggja ára hlé hátíðarinnar.