Bill Gates er kominn með kærustu

Bill Gates virðist hafa fundið ástina á ný, rúmum tveimur …
Bill Gates virðist hafa fundið ástina á ný, rúmum tveimur árum eftir skilnað hans og Melindu Gates. AFP

Milljarðamæringurinn og meðstofnandi Microsoft, Bill Gates, virðist hafa fundið ástina á ný. Rúmlega tvö ár eru liðin frá því að Bill og eiginkona hans til 27 ára, Melinda Gates, skildu. Þau gengu í hjónaband árið 1994 og eiga saman þrjú börn, þau Jennifer, Rory og Pheobe. 

Fram kemur á vef Page Six að Bill og Paula Hurd séu nú í sambandi. Paula er ekkja Mark Hurd, fyrrverandi forstjóra Oracle, sem lést í október 2019 aðeins 62 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. 

Deila ástríðu fyrir tennis

Bill og Paula hafa verið saman í meira en ár, en Paulu var lengst af lýst sem „huldukonu“ í fjölmiðlum. „Þau eru óaðskiljanleg. Þau hafa verið saman í meira en ár og henni hefur alltaf verið lýst sem „huldukonu“ en það er engin ráðgáta fyrir fólkið í kringum þau að þau séu í rómantísku sambandi,“ sagði heimildarmaður Daily Mail á dögunum. 

Bill og Paula eru sögð hafa þekkst áður en Mark lést, en þau deila mikilli ástríðu fyrir tennis. Í síðasta mánuði sást parið horfa á úrlistaleik karla í tennis á Opna ástralska meistaramótinu í Melbourne.

Bill Gates og Paula Hurd, sem er að taka mynd …
Bill Gates og Paula Hurd, sem er að taka mynd á símann sinn, á tennisleik. AFP

Sakaður um kynferðislega áreitni

Mark var framkvæmdastjóri tölvu- og prentaraframleiðslunnar Hewlett-Packed á árunum 2005 til 2010, en hann sagði af sér í ágúst 2010 eftir að hafa verið sakaður að áreita samstarfskonu sína kynferðislega á vinnustaðnum.

Skömmu síðar var hann ráðinn til starfa hjá keppinautnum Oracle, en þegar hann lést voru auðæfi hans metin á um 500 milljónir bandaríkjadala sem nemur rúmum 70 milljörðum íslenskra króna á gengi dagsins í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson