Aftur orðin stærst á Instagram

Leik- og söngkonan Selena Gomez er aftur orðin stærst á …
Leik- og söngkonan Selena Gomez er aftur orðin stærst á Instagram. AFP

Leik- og söngkonan Selena Gomez hefur nú flesta fylgjendur allra kvenna á Instagram. Greip hún þann kyndil af samfélagsmiðlastjörnunni Kylie Jenner á föstudaginn var.

Fylgjendur hennar eru nú 386 milljónir talsins en Jenner státar af 380 milljónum fylgjenda.

Stuttu eftir að hafa snúið aftur inn á miðilinn og komið sér á toppinn tilkynnti Gomez að hún myndi taka sér hlé frá Instargram.

Sakaðar um einelti 

Sögusagnir um deilur á milli Hailey Bieber og Selenu Gomez, sem reglulega skjóta uppi kollinum, hafa farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla og hefur fylgjendahópur Gomez farið ört stækkandi í kjölfarið. Hailey Bieber og Kylie Jenner hafa verið sakaðar um einelti gegn Gomez líkt og Popsugar hefur fjallað um, en stjörnurnar gefa lítið fyrir þann orðróm.

Hailey Bieber er gift poppgoðinu Justin Bieber en Gomez og Bieber voru saman nokkuð áður en til sambandsins kom, eins og þekkt er.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson