Alix Earle opinberar loksins sambandið

Alix Earle og Braxton Berrios eru nýjasta stjörnuparið.
Alix Earle og Braxton Berrios eru nýjasta stjörnuparið. Samsett mynd

TikTok-stjarnan Alix Earle hefur opinberað samband sitt við NFL-stjörnuna Braxton Berrios eftir miklar vangaveltur meðal aðdáenda hennar síðustu mánuði. 

Earle staðfesti sambandið í hlaðvarpinu Call Her Daddy í umsjón Alex Cooper, en þátturinn var haldinn í leikhúsi í Chicago fyrir framan fullan sal gesta.

Cooper spurði Earle í hlaðvarpinu hvort hún ætti kærasta, en áhorfendum til mikillar gleði svaraði Earle játandi og í kjölfarið brutust út mikil fagnaðarlæti í salnum. 

Earle og Berrios sáust fyrst saman í maí síðastliðnum á veitingastaðnum Saddle's í Flórdía, en eftir það fóru myndir og myndskeið af þeim á flug á samfélagsmiðlum. 

Hefur haldið sambandinu leyndu

Síðan þá hefur Earle haldið sambandinu að mestu leyndu, en hún hefur birt myndir og myndskeið af sér með „huldumanni“ þar sem hún passaði að andlit Berrios sæist aldrei. Það varð til þess að aðdáendur hennar urðu enn forvitnari.

Hún birti svo fyrsta myndbandið þar sem sést í andlitið á Berrios fyrr í vikunni og vakti það mikla lukku meðal fylgjenda hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Reyndu að hafa hemil á löngun þinni til að koma illa fram í dag, sama hversu innilega þú telur aðra eiga það inni hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg