Beggja skammta þörf í baráttunni við Delta

Bólusetningar við Covid-19 | 16. júlí 2021

Beggja skammta þörf í baráttunni við Delta

Tvo skammta af tveggja skammta bóluefnum gegn Covid-19 þarf til þess að öðlast fullnægjandi vernd gegn Delta-afbrigði kórónuveirunnar. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) og Evrópska sóttvarnamiðstöðin (ECDC) lýstu þessu yfir í dag. 

Beggja skammta þörf í baráttunni við Delta

Bólusetningar við Covid-19 | 16. júlí 2021

Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardalshöll.
Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardalshöll. mbl.is/Árni Sæberg

Tvo skammta af tveggja skammta bóluefnum gegn Covid-19 þarf til þess að öðlast fullnægjandi vernd gegn Delta-afbrigði kórónuveirunnar. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) og Evrópska sóttvarnamiðstöðin (ECDC) lýstu þessu yfir í dag. 

Tvo skammta af tveggja skammta bóluefnum gegn Covid-19 þarf til þess að öðlast fullnægjandi vernd gegn Delta-afbrigði kórónuveirunnar. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) og Evrópska sóttvarnamiðstöðin (ECDC) lýstu þessu yfir í dag. 

Hið svokallaða Delta-afbrigði (B.1.617.2) SARS-CoV-2 veirunnar breiðist hratt út í Evrópu og getur orðið þess valdandi að erfiðara muni reynast að halda heimsfaraldrinum í skefjum. Fyrirliggjandi gögn benda til að það sé 40-60% meira smitandi en Alpha-afbrigðið (B.1.1.7). Einnig kann Delta-afbrigðið að tengjast aukinni hættu á sjúkrahúsvist,“ segir í tilkynningu frá Embætti landlæknis um málið. 

Delta-afbrigðið hefur náð að breiðast út hér á landi. Um 85% íbúa sem eru 16 ára og eldri hérlendis hafa fengið fulla bólusetningu gegn Covid-19 og tæp 5% hálfa bólusetningu, þ.e. einn skammt af tveimur. 

Mikilvægi þess að ljúka bólusetningum undirstrikað

Evrópska sóttvarnamiðstöðin reiknar með því að í lok ágúst verði 90% allra virkra kórónuveirusmita í Evrópu af völdum Delta-afbrigðisins. Miðstöðin telur því mikilvægt að lönd hraði bólusetningum eins og kostur er til að koma í veg fyrir smit og að veiran þróist áfram í enn önnur afbrigði.

Eftir því sem Delta-afbrigðið dreifist í auknum mæli er mikilvægi þess að ljúka fyrirhugðum bólusetningum undirstrikað. Bráðabirgðagögn benda til þess að beggja skammta af tveggja skammta bóluefnum gegn COVID-19, eins og Comirnaty (BioNtech/Pfizer), Spikevax (Moderna) eða Vaxzevria (AstraZeneca), sé þörf til að veita fullnægjandi vörn gegn Delta-afbrigði veirunnar,“ segir í tilkynningu Embættis landlæknis.

Á vef Embættis landlæknis er einnig fjallað um þá leið að nota bóluefni frá öðrum framleiðanda við gjöf seinni skammts. Það hefur verið gert hér á landi í tilfellum þeirra sem hafa fengið bóluefni AstraZeneca í fyrri skammti. 

Notkun tveggja ólíkra bóluefna (stundum kallað „mix and match“ á ensku), þar sem annars konar bóluefni er gefið í seinni skammtinum, hefur verið beitt áður fyrir önnur bóluefni. Það eru góðar vísindalegar forsendur til að ætla að þessi aðferð sé örugg og árangursrík þegar henni er beitt við bólusetningu gegn COVID-19. Aðferðin getur flýtt bólusetningum og gert þjóðum kleift að nýta betur tiltækar birgðir af bóluefnum,“ segir á vef Embættis landlæknis.

Engar endanlegar ráðleggingar varðandi notkun mismunandi bóluefna

Þar kemur fram að stofnanirnar sem um ræðir séu ekki tilbúnar til að leggja fram neinar endanlegar ráðleggingar varðandi notkun mismunandi bóluefna gegn COVID-19 þegar tveir skammtar eru notaðir.

Engu að síður benda bráðabirgðaniðurstöður rannsókna á Spáni, Þýskalandi og Bretlandi til þess að aðferðin skili fullnægjandi ónæmissvörun og ekki sé að merkja sérstaka hættu af henni. Fleiri gagna er beðið og mun EMA rýna þau þegar þau verða aðgengileg.“

Hvort þörf verði á endurbólusetningu fyrir fullbólusetta, vegna Delta-afbrigðisins, er ekki víst. 

Ástæðan er skortur á gögnum og þekkingu á hversu lengi vörnin af bóluefnunum endist, ekki síst með tilliti til útbreiðslu ólíkra tilbrigða. Samvinna á milli EMA, ECDC og ráðgjafarhóps Evrópulanda um bólusetningar (NITAGs) er nú þegar til staðar ef til þess kæmi að þörf yrði á endurbólusetningu. Öll ný gögn sem verða tiltæk verða yfirfarin með hraði.

mbl.is