Forvarnarhópurinn Bleiki fíllinn hættir

MeT­oo - #Ég líka | 24. júlí 2022

Forvarnarhópurinn Bleiki fíllinn hættir

Forvarnarhópurinn Bleiki Fíllinn hefur ákveðið að hætta eftir 10 ára starf. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu hópsins.

Forvarnarhópurinn Bleiki fíllinn hættir

MeT­oo - #Ég líka | 24. júlí 2022

Forvarnahópurinn Bleiki fíllinn var stofnaður árið 2012 og hafði það …
Forvarnahópurinn Bleiki fíllinn var stofnaður árið 2012 og hafði það að mark­miði að fræða þjóðhátíðargesti um samþykkt kyn­líf.

Forvarnarhópurinn Bleiki Fíllinn hefur ákveðið að hætta eftir 10 ára starf. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu hópsins.

Forvarnarhópurinn Bleiki Fíllinn hefur ákveðið að hætta eftir 10 ára starf. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu hópsins.

„Eftir tvær MeToo byltingar hefur vissulega mikið áunnist þó langt sé í land. Við í hópnum erum þó orðin lúin og teljum að nú séu kaflaskil í starfi okkar. Hver sem framtíðin verður viljum við nota tækifærið nú og þakka fyrir ómetanlegan stuðning gegnum árin,“ segir í færslunni.

„Við hófum störf í afar ólíku landslagi en við sjáum nú. Orðræðan var allt önnur og viðhorf til kynferðisofbeldis voru oftast nær einföld; þagga niður þetta óþægilega mein samfélags okkar. Slagorð okkar voru því skýr: Það er bleikur fíll í stofunni, vandamál sem allir vita af en enginn vill ræða. Því þarf að breyta,“ segir enn fremur í færslunni.

Hvetja fólk til að bera merki hópsins

Hópurinn, sem var stofnaður árið 2012, hafði verið í samstarfi við þjóðhátíðarnefnd sem snéri að því að vinna gegn kynferðisofbeldi.

Þá hvetur hópurinn fólk til að halda áfram að bera merki hópsins, þannig sé verið að stuðla að vitundarvakningu.

„Þegar þið berið merki hópsins eruð þið að stuðla að vitundarvakningu og umræðu. Ekki hætta því. Þannig eruð þið hluti af lausninni en ekki vandanum. Þið viljið ekki bleika fíla í ykkar liði, þið viljið að fólk ræði um mikilvægi samþykkis, þið styðjið þolendur, þið viljið ekki stinga hausnum í sandinn, þið viljið stuðla að breytingum.“

mbl.is