Vikan var fjörug á Instagram. Fólk gerði allt mögulegt til þess að lyfta sér upp. Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleini eins og hann er kallaður, fór til Mílanó ásamt ástinni sinni henni Hafdísi. Eftir ferðina er hann farinn að kalla hana konuna sína en þau hófu samband um miðjan mars.

Áhrifavaldurinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason byrjaði laugardaginn sannarlega vel með hlaupi í sólinni.
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir átti notalegan dag í Sky Lagoon þar sem hún naut sín í botn.
Greta Salóme gekk að eiga unnusta sinn, Elvar Þór Karlsson, á dögunum!
Það væsir ekki um áhrifavaldinn Brynhildi Gunnlaugsdóttur sem skellti sér í sólbað í vikunni.
Rannveig Hildur Guðmundsdóttir skellti sér í trylltan bleikan galla og skemmti sér um helgina.
Áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir naut sín líka í Sky Lagoon með vinkonu sinni, Sunnevu Einarsdóttur.
Þjálfarinn og sálfræðineminn Telma Fanney Magnúsdóttir er mætt í sólina á Balí.
Hlaupaparið Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité tóku þátt í skemmtilegu hlaupi í Vestmannaeyjum síðastliðna helgi.
Áhrifavaldurinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir skemmti sér vel um helgina þegar hún gæsaði vinkonu sína.
Diljá Pétursdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision, er stödd í Liverpool um þessar mundir og hefur aldrei verið betri.
Áhrifavaldurinn Jóhanna Helga Jensdóttir lyfti sér upp yfir helgina og skálaði.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir var töff með bleika hárkollu er hún tróð upp í Hörpu ásamt Kristófer Nökkva.
Leikkonan Þuríður Blær Jóhannsdóttir var stórglæsileg og litrík í hönnun eftir Helga Björnsson.
Ljósmyndarinn Helgi Ómarsson stóðst vart mátið og skellti af sér nokkrum speglamyndum áður en hann hélt út í daginn.
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar var einn þeirra sem dæmdu söngkeppni Samfés um helgina ásamt fleiri hæfileikaríkum einstaklingum.
Lára Clausen klæddi sig upp á og naut lífsins.
Sigríður Thorlacius póstaði mynd af sér og einkasyninum sem fer sístækkandi.
Sunddrottningin Ragga Ragnars kann best við sig í vatni eins og sést á myndinni.
Förðunarmeistarinn Harpa Kára sem rekur Makeup Studio Hörpu Kára á einstaklega fallegt heimili.
Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleini eins og hann er kallaður, og Hafdís Björg Kristjánsdóttir einkaþjálfari fóru til Mílanó á Ítalíu. Um er að ræða þeirra fyrstu ferð saman á erlenda grundu.