Að undanförnu hafa ákveðin heimilistrend dúkkað upp á yfirborðið sem öll eiga það sameiginlegt að gleðja augað og gefa heimilinu ferskan blæ.

Náttúrulegir tónar, efniviður og áferð mun áfram fanga hug og hjörtu landans, en með hækkandi sól hefur litagleðin læðst inn á heimili landsmanna í auknum mæli og gefið þeim skemmtilegan karakter.
Sterkir og kröftugir litir munu sjást í meiri mæli í sumar, þá sérstaklega blár, grænn og gulur, sem passa sérlega vel við jarðliti. Mjúkar og ávalar línur hafa verið áberandi í skrautmunum og húsgögnum í bland við óhefðbundin form, en þá hafa mismunandi mynstur einnig heillað landann upp úr skónum. Marokkósk mynstur fara þar fremst í flokki, en auk þess má nefna rendur, köflótt mynstur og óregluleg mynstur, sem gefa hvaða rými sem er sjarma.
Króm hefur verið á mikilli uppleið í hönnunarheiminum undanfarna mánuði og mun halda því áfram í sumar. Ljós eik verður áfram áberandi á heimilum landans og það sama má segja um kalkmálningu, sem hefur verið að gera allt vitlaust undanfarna mánuði.